Föstudagur 8. desember

Af jólum, hálsbólgu og Serge

ég las á heimasíðu ágætst félaga að jólagjafavandinn er hafinn á hans bæ. hér á bæ hefur honum verið skotið aðeins á frest því vinna og veikindi hafa plagað heimilið þessa vikuna. nóg að gera hjá mér og svanhildur fékk hálsbólguna í heimsókn en er nú óðum að ná fyrri heilsu. en eins og hjá öðrum verður í nógu að snúast fram að jólum.


þegar við bjuggum í frakklandi sáum við í þarlendu sjónvarpi þátt sem var svona samantekt með 100 stærstu klúðrum sem hent höfðu í beinni útsendingu þar í landi. númer eitt var atriði með einum af stórsnillingum þeirrar þjóðar, tónlistarmanninum Serge Gainsbourg, en það er sá sem flutti "dónalega lagið" um árið. Serge var ekki þessi týpa sem var alltaf bláedrú, meira svona á hinn veginn. Hann mætti í sjónvarpssal til viðtals ásamt dívunni Witney og átti þar svona líka eftirminnilegt atriði.
Það fann ég á youtube og langar að bjóða ykkur að kíkja á það með því að smella = HÉR =


1. grein öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir

- mundi | 18:03
Umræður

Harpa:

Láttu þér batna af hálsbólgunni Svanhildur.
Er að taka mér smá kaffipásu núna.
Ég er ekki en komin með jólastress eða mikin jólafíling er bara búin að vera að mála eins og asni og var að mála til 5 á fimmtudaginn og vaknaði svo fyrir 8 í morgunmat og tíma fullfersk, er svona kalt þú átt að klæða þig betur og Mundi þú verður að strúka henni ;)

(09.12.06 19:54)

Torfi:

... sé maður að fara í beina útsendingu - hef ég heyrt - að það sé alltaf betra að vera svolítið ölvaður.

Sél þetta ódýrt.

(10.12.06 20:23)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni