nóvember 25, 2006

Við Djúp

tn_DSC09198.JPG


hér er önnur mynd frá ferðinni vestur. en fyrir þá sem hafa áhuga á ljósmyndum þá bendi ég á myndasíðuna hennar Aurelie, en hún er betri gerðin af áhugaljósmyndara.

-mundi | 13:42 | Comments (6)

nóvember 20, 2006

Rjúpnaferð

tn_DSC09175.JPG


Svona var það við ísafjarðardjúpið á fimmtudaginn síðasta...

kalt - já bara assgoti kalt.

en gaman. :)

-mundi | 23:15 | Comments (8)

nóvember 10, 2006

Þetta finnst mér gott grín!

-Svanhildur | 14:10 | Comments (1)

nóvember 7, 2006

Ég mæli með því við alla sem hafa gaman af að hlæja smá að sjálfum sér að skella sér á Best í heimi í Iðnó. Æðisleg sýning! Og ekki sakar að fara út að borða á undan á Thorvalsen eins og við gerðum á laugardaginn, alltaf jafn gott þar og verðið sanngjarnt. Og alltaf gaman líka að hlusta á trúbadorana à Hressó.


Svona var sem sagt laugardaskvöldið hjá okkur Munda: vel heppnað!

-Svanhildur | 07:58 | Comments (1)

nóvember 3, 2006

Ósköp er maður eitthvað latur að blogga þessa dagana og ástæðan er alla vega ekki sú að maður hafi ekki frá neinu að segja, alltaf nóg um að vera.


Fór í Þórsmörk með Flubbunum á föstudagskvöldið þar sem við gistum í Ferðafélagsskálanum í Langadal. Á laugardeginum var svo tekin löng og góð gönguferð sem hófst í rigningu sem breyttist í snjókomu með aukinni hæð, en lauk í sól og blíðu. Góða veðrið hélst svo allan sunnudaginn þegar við gengum yfir Fimmvörðuhálsinn. Helgin var alveg meiriháttar en mikið var ég þreytt þegar við komum til Reykjavíkur á sunnudagskvöldið. Ég var enn þreytt á mándeginum og harðsperrurnar fóru ekki fyrr en á miðvikudaginn!


Ég var í fríi í vinnunni á miðvikudaginn því 1. nóvember er franskur frídagur. Mikið er gott að fá svona auka frídag öðru hvoru til að slappa aðeins af. Tókst samt líka að eyða slatta af peningum á Lagersölu 66° Norður, alveg að missa mig í útivistinni þessa dagana. En það er svo yndislegt að fara svona út úr bænum alltaf aðra hverja helgi, vera úti í náttúrunni og hreina loftinu og púla pínu.


En næsta helgi verður í bænum. Erum að fara að sjá “Best í heimi” í Iðnó þar sem einn af leikurunum er yfirmaður minn hér í sendiráðinu, ætlum að fara nokkuð mörg saman úr vinnunni og skemmta okkur vel. Annars fórum við Mundi líka í bíó í vikunni og sáum Mýrina. Get vel mælt með henni. Svo fengum við líka góða gesti í heimsókn í gærkveldi þegar Torfi og Eva droppuðu við á leið sinni til Parísar og tóku með okkur nokkra kana.


Sem sagt nóg um að vera en þó spurning hvað verður gert í kvöld.


Góða helgi!

-Svanhildur | 18:19 | Comments (2)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni