október 25, 2006

Frakklandsferð 2006

tn_DSC00795.JPG

Loksins loksins hafði ég mig í það að velja nokkrar myndir frá Frakklandsferð okkar og koma þeim á myndasíðuna okkar. Af nógu var að taka því mér sýnist að ég hafi tekið um 550 myndir í túrnum. En mér þykir ákaflega gaman að ljósmynda... :)


Vonandi geta einhver ykkar því stytt sér stundir í vinnunni eða skólanum næstu daga við að kíkja á herlegheitin, en hlekkurinn á myndasíðuna okkar er sem fyrr hér til hliðar...

-mundi | 22:16 | Comments (4)

október 12, 2006

Alltaf nóg um að vera

Þótt ritgerðarskrifum sé lokið er enn nóg að gera. Um helgina fórum við norður á Sauðárkrók í afmæli hjá ömmu hans Munda. Þetta var svaka fín afmælisveisla og vel heppnuð helgi.


Á mánudaginn skipti ég svo um vinnu þar sem ég fékk loksins að hætta í bókhaldinu og færa mig niður í menningardeildina. Þetta er miklu skemmtilegri vinna enda þarf svo sem ekki mikið til að toppa bókhaldsvinnu.


Í gærkvöldi var svo haldin útskriftarveisla heima hjá mömmu og pabba. Kvöldið var mjög vel heppnað og það mættu barasta allir í fjölskyldunni og nokkrir í viðbót. Það hefði kannski verið meira stuð ef veislan hefði verið haldin um helgi en maður er bara upptekinn gjörsamlega allar helgar. En ég held að allir hafi verið ánægðir með veisluna og vil ég þakka öllum fyrir komuna og allar frábæru gjafirnar sem ég fékk.


Í kvöld eru svo Tengdó að koma í mat og svo fer ég á skyndihjálparnámskeið með flubbunum um helgina; út úr bænum á morgun kl 19 og ekki komið til baka fyrr en á sunnudagseftirmiðdag. En ég hlakka til og líka gaman að fara að læra skyndihjálp

-Svanhildur | 12:14 | Comments (8)

október 3, 2006

Master

tn_DSC00956.JPG


Við komum heim frá Frakklandi um kveldmat á sunnudag eftir 8 daga vel heppanaðan túr. Fyrstu nóttinni eyddum við í Dijon þar sem ég verslaði sinnep. Síðan héldum við til Grenoble þar sem við eyddum 3 dögum. Svanhildur varði masterinn sinn á mánudeginum og rúllaði hreinlega vörninni upp. Stórglæsilega að verki staðið. Um kvöldið fögnuðum við áfanganum með Ásdísi og Benoit og borðuðum á "la panse" og fórum svo á Couche Tard á bindindismót.


Tveim dögum og jafn mörgum nóttum eyddum við svo uppi í fjöllunum hjá Gonna og frú. Þar fengum við alveg frábært veður og fórum í gönguferðir sitt hvorn daginn. og héldum síðan áfram för okkar norðvestur til mið frakklands og enduðum í parís.

ég segi kannski nánar frá því síðar. hér er nefnilega nóg að gera og billund-búarnir koma á morgun á klakann.
-----

ég myndaði sem óður væri alla ferðina og náði þessari mynd á plateau d'emparis sem er í 2300 m.y.s, skammt frá Clavans þar sem Gonnarnir búa. Fleiri myndir frá ferðinni koma í myndaalbúmið á næstunni. en fyrir þá sem hafa áhuga á ljósmyndum bendi ég á síðuna hans Magna, en hann tekur fínar myndir. Smellið ---HÉR---til að komast þangað

-mundi | 19:02 | Comments (14)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni