september 20, 2006

Í gær lærðum við Mundi á áttavita á námskeiði hjá flugbjörgunarsveitinni. Núna er ég búin að fara á tvö námskeið, tvisvar að skokka og í eina ferð og líst bara alveg svaka vel á þetta. Er frekar fúl yfir að missa af rötunarnámskeiðinu sem verður um þessa helgi í Tindfjöllum. En maður getur víst ekki gert allt og þessi Frakklandsferð leggst alveg svaka vel í mig. Nú eru bara þrír dagar í brottför og fimm dagar í vörn og eftir það verð ég "frjáls" manneskja!

-Svanhildur | 14:07 | Comments (5)

september 8, 2006

Allt að gerast

Ég var að enda við að senda ritgerðina út svo nú er bara vörnin eftir. Nú þegar er miklu fargi af mér létt.


Í gær fór ég svo á nýliðakynningu hjá Flugbjörgunarsveitinni og leist svona líka svaka vel á þetta hjá þeim að ég er búin að skrá mig og er að fara með þeim upp í Bláfjöll á eftir þar sem við nýliðarnir munum eyða helginni.


Svo eru bara tvær vikurí brottför til Frakklands.


Það er sem sagt allt að gerast.

-Svanhildur | 14:17 | Comments (4)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni