Þriðjudagur 29. ágúst

Ljúfa lífið

Já eftir alveg rosalega erfiða síðustu viku er ljúfa lífið tekið við - alla vega í smá tíma. Ég sendi leiðbeinandanum mínum uppkast af ritgerðinni á fimmtudagskvöldið og sendi henni svo síðustu kennsluverkefnin mín í gær. Það var frekar skrítið að fara bara beint heim eftir vinnu í gær og geta bara gert það sem mig langaði til. Nú bíð ég bara eftir að hún sendi þetta á mig til baka til lokasnurfusunar. Nú eru því nokkrir dagar þar sem ég get lítið verið að vinna í þessu. Ég fór Því og hitti Hildi og Sólveigu í gærkvöldi til að kveðja þær en Sólveig er að fara í mastersnám í arkitektúr í NY og Hildur er að fara að ferðast um Afríku í fjóra mánuði og ætlar eitthvað að reyna að hjálpa nokkrum Afríkubúum í leiðinni. Voða spennó og ég óska henni og Unni alveg osalega góðrar ferðar og bendi ykkur á að ég er búin að setja link á skvísurnar en þær ætla að vera duglegar að blogga ef þær komast í net.


Annars var ég að lesa frétt á mbl þar sem einhver peningafræðingur ráðleggur þeim sem eru að fara að kaupa sína fyrstu íbúð að leigja í nokkur ár og safna. Það borgi sem ekki að vera að taka lán á svona háum vöxtum og í svona mikilli verðbólgu. Svo að ég talaði við bankann og er að fara að stofna söfnunarreikning hjá þeim. Verð samt að segja að mér brá pínu að sjá að peningamaðurinn sagði að fólk ætti að leigja í NOKKUR ÁR! Hvað mynduð þið segja að nokkur ár séu langur tími? Eru það ekki svona fjögur til fimm ár? Ég ætlaði nú bara að legja í svona eitt ár og kaupa svo eitthvað. En þetta kemur bara í ljós, alla vega gott að byrja á að reyna að spara svolítið.


Annars er Mundi alveg að fara yfirum af jeppalöngun, sem setur öll mín söfnunaráform úr skorðum, en ég held að mér sé búið að takast að sannfæra hann um að það sé best að bíða í nokkra mánuði, reyna að keyra svolítið meira úr Volfgangi og kaupa jeppa í vor og nota hann mikið næsta sumar. Bensínið er svo svakalega dýrt að það er betra að vera bara á Volfgangi í vetur, já og auðvitað líka á nýju hjólfákunum okkar! En við erum sem sagt búin að ákveða að kaupa jeppa í mars. Mundi vill fá það frá mér skriflega svo að ég geti ekki verið með neitt múður þegar að marsmánuður rennur upp.


En það er sem sagt bara allt gott að frétta. Bara afslappelsi hjá mér fyrir lokatörnina, vinnutörn hjá Munda núna og svo norðurferð næsta föstudag. Vonandi kemur hann heim með nokkrar gæsir. Annars erum við bæði farin að hlakka mikið til að fara út.


- Svanhildur | 10:38
Umræður

Ásdís Jóh.:

Takk aftur fyrir okkur! Þetta var æði :)

(30.08.06 09:42)

Svanhildur:

Já takk sömuleiðis, mikið var þetta gaman!

(30.08.06 10:57)

Harpa:

Hann Mundi er búin að fá þetta skriflegt hjá þér Svanhildur, þanig að þú verður að standa við orð þín. En með söfnunina gangi þér vel og skemtið ykkur í Fraklandi, kossar og knús frá Danmörk.

(30.08.06 18:42)

Fanney:

ohh ég skil hann svoooo vel, það er svooo gaman að keyra jeppa, því stærri því betri. Það verður samt ekki aftur snúið í mars þegar hann rennur loksins upp...

(01.09.06 00:21)

sara hrund:

hæ hæ
er núna bara nágranni þinn. hvenær leggiði af stað norður í dag?
en ég er annars hlynnt sparnaði og um að gera að spara og spara fyrir íbúð. leigja ódýrt á meðan. þessi lán finnst mér orðin dáldið dýr svona í lengdina litið.
en hlakka til að heyra í þér
kossar og knús

(01.09.06 08:37)

Svanhildur:

Hæ Sara nágranni.

Mundi er nú bara að fara einn norður, ég verð eftir í bænum að leggja lokahönd á ritgerðina, þarf að senda hana út í næstu viku.

En við þurfum nú endilega að fara að hittast, ekki síst þar sem við búum núna í sama hverfi. En kannski við sjáumst bara hjá ömmu í fyrramálið?

(01.09.06 12:09)

sara hrund:

við sjáumst þar alveg á hreinu. ég ætla bara að hjóla þetta. kannski viltu verða samferða?

(01.09.06 17:34)

Hildur:

Hae hae elsku baedi tvo. Mer list vel a jeppa i mars og ad fara i jeppaferdir naesta sumar, skal meira ad segja leggja i pukk fyrir jeppann.. enda vaentanlega vellaudug eftir ferdina.. Gangi ther annars vel Svansy min med lokasprettinn a ritgerdinni og med vornina, bid svo ad heilsa Couche tard.. Skrifadu a vegginn: Svansy, meistari i fronsku :)

(03.09.06 21:36)

Jón Gunnar:

Menn þurfa náttúrlega að eiga jeppa og helst breyttann því að á svoleiðis er hægt að fara á í gæsir og gæsakjöt er gott! Ergo sum....menn þurfa náttúrlega að eiga jeppa!

(08.09.06 10:44)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni