ágúst 29, 2006

Ljúfa lífið

Já eftir alveg rosalega erfiða síðustu viku er ljúfa lífið tekið við - alla vega í smá tíma. Ég sendi leiðbeinandanum mínum uppkast af ritgerðinni á fimmtudagskvöldið og sendi henni svo síðustu kennsluverkefnin mín í gær. Það var frekar skrítið að fara bara beint heim eftir vinnu í gær og geta bara gert það sem mig langaði til. Nú bíð ég bara eftir að hún sendi þetta á mig til baka til lokasnurfusunar. Nú eru því nokkrir dagar þar sem ég get lítið verið að vinna í þessu. Ég fór Því og hitti Hildi og Sólveigu í gærkvöldi til að kveðja þær en Sólveig er að fara í mastersnám í arkitektúr í NY og Hildur er að fara að ferðast um Afríku í fjóra mánuði og ætlar eitthvað að reyna að hjálpa nokkrum Afríkubúum í leiðinni. Voða spennó og ég óska henni og Unni alveg osalega góðrar ferðar og bendi ykkur á að ég er búin að setja link á skvísurnar en þær ætla að vera duglegar að blogga ef þær komast í net.


Annars var ég að lesa frétt á mbl þar sem einhver peningafræðingur ráðleggur þeim sem eru að fara að kaupa sína fyrstu íbúð að leigja í nokkur ár og safna. Það borgi sem ekki að vera að taka lán á svona háum vöxtum og í svona mikilli verðbólgu. Svo að ég talaði við bankann og er að fara að stofna söfnunarreikning hjá þeim. Verð samt að segja að mér brá pínu að sjá að peningamaðurinn sagði að fólk ætti að leigja í NOKKUR ÁR! Hvað mynduð þið segja að nokkur ár séu langur tími? Eru það ekki svona fjögur til fimm ár? Ég ætlaði nú bara að legja í svona eitt ár og kaupa svo eitthvað. En þetta kemur bara í ljós, alla vega gott að byrja á að reyna að spara svolítið.


Annars er Mundi alveg að fara yfirum af jeppalöngun, sem setur öll mín söfnunaráform úr skorðum, en ég held að mér sé búið að takast að sannfæra hann um að það sé best að bíða í nokkra mánuði, reyna að keyra svolítið meira úr Volfgangi og kaupa jeppa í vor og nota hann mikið næsta sumar. Bensínið er svo svakalega dýrt að það er betra að vera bara á Volfgangi í vetur, já og auðvitað líka á nýju hjólfákunum okkar! En við erum sem sagt búin að ákveða að kaupa jeppa í mars. Mundi vill fá það frá mér skriflega svo að ég geti ekki verið með neitt múður þegar að marsmánuður rennur upp.


En það er sem sagt bara allt gott að frétta. Bara afslappelsi hjá mér fyrir lokatörnina, vinnutörn hjá Munda núna og svo norðurferð næsta föstudag. Vonandi kemur hann heim með nokkrar gæsir. Annars erum við bæði farin að hlakka mikið til að fara út.


-Svanhildur | 10:38 | Comments (9)

ágúst 16, 2006

vinna-læra-borða-læra-sofa

Undanfarnar vikur hefur dagskráin hjá mér verið eftirfarandi:
Virkir dagar: 9-16: vinna, 16-? vinna í lokaverkefni
Helgar: vinna í lokaverkefni
Dagskráin er eins fyrir næstu vikurnar og ég get sko sagt ykkur að ég er fyrir löngu komin með upp í háls. Þetta er eitthvað voðalega erfitt hjá mér þessa dagana og mikið hlakka ég til þegar þetta verður búið. Ég sé næsta ár alveg í hyllingum að vera ekkert í skóla. Skrítið hvað ég er gjörsamlega búin að fá nóg núna, ég sem hef alltaf hlakkað til að byrja afturí skólanum á haustin.


Ég er svo roaslega á síðustu stundu með þetta lokaverkefni mitt, er að rembast við að ná að pússla þessu saman fyrir lokaskiladag, en ég efast þó ekkert um að ná að klára, það endar þá bara með því að ég sleppi því að sofa í nokkra daga. En það er svo sem ekki eins og ég hafi ekki haft nægan tíma. Ef ég hefði bara skrifað í ca. tvo klukkutíma á dag frá því ég kom til Íslands þá væri ég löngu búin. En einhverra hluta vegna þá gekk bara ekkert hjá mér fyrr en ég var orðin það sein að það var annað hvort að duga eða drepast, já eða kannski ekki drepast heldur bara ekki útskrifast. Hvað er eiginlega málið með að geta ekki unnið nema undir pressu? Þetta er hræðilegur galli en ég veit að ég er ekki sú eina sem þjáist af þessu.


Svo fylgja þessu líka hræðilegar aukaverkanir eins og t.d. nammisýki sem skilur eftir sig bólur um allt andlit, andvökunætur sem valda baugum og ég er hætt að gefa mér tíma til að fara í ræktina svo að ekki grennist ég á meðan. Þetta hefur því slæm áhrif á útlitið en það er svo sem ekki alvarlegt þar sem ég var afar falleg fyrir :-) Ég fer bara í nammibindindi og út að hlaupa í haust.


En þetta fer nú alveg að verða búið og mikið verður gaman að fara til Frakklands og svo að geta bara slappað af og tekið því rólega allan næsta vetur. Ég get ekki beðið!

-Svanhildur | 15:17 | Comments (14)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni