sól sól skín á mig...

mikið agalega er mig farið að þyrsta í sól. eins og það hentar nú í raun vel að hafa skýjað og ekki heitt þegar maður er fastur inni í húsi að sandsparsla allt sumarið, þá langar mig nú bara samt í sól þegar ég á frídag. sjaldan er maður fullkomlega ánægður með veðrið.
svo langar mig líka til útlanda. við erum reyndar búin að kaupa okkur ferð til frakklands í september. það er bara svo langt þangað til....!
til að sameina þessi tvö áhugamál mín þá birti ég hér mynd af undirrituðum í dönsku sólarlagi verslunarmannahelgina 2003 .
Eva:
.. mæli með norðurferð. Hér er skínandi sól uppá hvern dag.
(02.07.06 22:13)
Torfi:
... nákvæmlega !!
... og svo baðlón í Mývó - allt klárt!
(05.07.06 09:40)