Sunnudagur 16. júlí

Fyrirhyggjusemi eða stefna.

þegar ég var gutti stóð ég á drifskaftshryggnum í gamla rauða volvo og hélt mér í hauspúðana beggja vegna. þannig sá ég vel út. orðið reiðhjólahjálmur var held ég ekki til, því síður olnboga og hnéhlífar þegar farið var á hjólabretti eða skauta. fæstir notuðu öryggisbelti við akstur. barnabílstólar voru af einni einfaldri gerð og það var ekki barnalæsing á sápubrúsum. léttmjólk var ekki til framan af og ekki dæet kók heldur. matur var almennt með sykri og fitu. svo má lengi telja.


þetta er breytt. sumt sannarlega til hins betra. ástæðan fyrir því ég skrifa um þetta er sú að ég er að vinna fyrir ístak þessa dagna og þeir boðuðu alla á öryggisfund nú á föstudaginn. þar voru okkur kynntar nýjar reglur um öryggi á vinnustöðum. nú verðum við málarar að vinna með hjálm allan tímann. við megum ekki lengur nota heyrnarhlífar með útvarpi og því síður tala í símann. við eigum að vera í skóm með stáltá og vera í appelsínugulum vestum.


ég er alveg viss um að þessar reglur eiga ágætlega við þá sem vinna við uppsteypu á húsum. þar er verið að hífa allskonar dót og þungavinnuvélar æða um allt. þá er gott að vera sýnilegur og heyra vel.
staðreyndin er hins vegar sú að hlutverk mitt í byggingu húsnæðis er annars eðlis, allt annars. er það ekki svona óþarflega mikill viðbúnaður að vera í skærgulu vesti, með stáltá og hjálm við það að lakka glugga?? gæti reyndar misst pensilinn í tánna á mér en gott og vel... já og án útvarps þannig að ég heyri nú örugglega í steypubílnum sem er við það að bakka yfir mig á þriðju hæð.


mér finnst ekki óeðlileg krafa að við notum hjálm þegar við göngum um vinnusvæðið, en á ekki að láta menn nota sína eigin skynsemi annars lagið. eigum við ekki að fá eitthvert vald til að meta aðstæður og bregðast við, eða á að mata okkur öll á því sama. er ekki óeðlilegt þegar allt er orðið svo "reglubundið" að menn hætti að hugsa sjálfir?


eigum við valið, eða eru það þeir sem setja reglurnar???

- mundi | 21:58
Umræður

Torfi:

... þetta er kallað svíismi !

(17.07.06 10:44)

Bjössi:

ekki belgismi?

(17.07.06 11:36)

mundi:

svíismi já.... :)

(17.07.06 18:49)

Torfi:

... belgismi er allt annað mál og sínu verra !!!

þetta sem Guðmundur lýsir svo fjálglega hér er hreinræktaður svíismi og ekkert annað.

Fari Hólmgrímur öryggisvörður bara með sínar reglur beint í pittinn fúla!

(17.07.06 19:17)

mundi:

beinustu leið

(17.07.06 19:58)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni