Þriðjudagur 4. júlí

Fótbolti

tn_kr-zinedine_zidane.jpg

þá er komið að því. ég ætla að skrifa um tuðruspark. það má öllum vera ljóst að ég hef ekki verið sérstakur áhugamaður um þá iðju í gegn um tíðina. mér hefur verið um það bil slétt sama. hef haft meira gaman af kappakstri og slíku.


nú bregður hins vegar þannig við að ég er búinn að fara og sjá 2 leiki í yfirstandandi heimsmeistarakeppni. ég hef hitt nokkra frakka í alþjóðahúsinu til að sjá fyrrum gestgjafa mína leika gegn, fyst spanjólum og síðar brasölum...


það kom mér skemmtilega á óvart að ég hef haft virkilega gaman af þessu. ég er alveg þrælspenntur og held með frökkum. þjóðin sem ég elskaði að hata en kunni síðar betur að meta. þar að auki er eini frægi frakkinn sem ég komst í návígi við meðan ég bjó í frakklandi í liðinu. það er zidane sem var rétt hjá mér á tónleikum í parís. hann reynir að gera allt eins og ég og er með sömu greiðslu og allt!!!


ég ætla að fara og sjá frakkana spila á morgun og svo ætla ég aftur á sunnudaginn að sjá þá spila úrslitaleikinn gegn þýskalandi þar sem zidane klárar feril sinn með því að skora fyrir frakka á síðustu mínútum leiksins. 1-0 og frakkar fara heim með dolluna.


Birni og Torfa er velkomið að nota kommentakerfið - hins vegar verður lítið mark á því tekið sem þeir segja þar í þetta skiptið !!! :-)

- mundi | 19:10
Umræður

Bjössi:

það verður nú enn minna mark tekið á þessari færslu þinni...

(04.07.06 22:24)

mundi:

hahahaha.... já - jafnvel rétt hjá þér!

(04.07.06 22:39)

Hrólfur:

Get ekki verið meira sammála um tuðrusparkið. Hef hins vegar ekki limmst við imbann.

long time no see,

Hrolfur
búsettur í Kanada og starfandi sem Landslags Arkitekt.

(05.07.06 03:43)

Heida i Sviss:

hahahahhahahahahhahahahahhahahaha....heyrdirdu ekki Mundi tegar Zidane var ad thakka ther fyrir ad hvetja sig afram;)

(05.07.06 06:55)

Ásdís:

Sjáumst í banastuði í kvöld!

(05.07.06 09:11)

Óli Helgi:

Allez les bleus !!
Þetta verður rosalegt. Franska hjartað byrjaði að slá aftur þegar ég sá FRA-ESP um daginn, og núna vonar maður bara að Zidane endi ferilinn með HM dollu.
"Allons enfants de la Patrie
Le jour de gloire est arrivé !"

(05.07.06 09:21)

Torfi:

Ertu tognaður á heila... án gríns - þetta er bara hið allra versta mál og legg ég til að þú hættir þessu hið snarasta !!

(05.07.06 13:53)

Sísý:

Mér finnst tuðruspark er í góðu lagi svo lengi sem þetta verður ekki að trúarbrögðum hjá fólki!!!

En það verður víst gegn Ítölumi sem þeir spila til úrslita þá þar sem þeir lögðu mína menn (Þjóðverja) að velli í Dortmund í gær. Þannig að ég skal hvetja Frakkana áfram gegn andsk. ítölunum.

(05.07.06 16:11)

Sísý:

e-ð var nú bogið við þetta málfar hjá mér ;)

(05.07.06 16:12)

Bjössi:

nei, Sísý, það er eitthvað bogið við þetta hugarfar...

(05.07.06 16:43)

mundi:

frakkar 1 portúgal 0 ... .nú á bara eftir að ná í dolluna.... ;)

(05.07.06 21:59)

dagný:

sama er mér á meðan Óli (sá frakki hér að ofan) heldur áfram að vinna bjór með því að veðja á þá bláu.. við erum nú þegar komin með góðan lager fyrir kveðjupartýið...

(07.07.06 16:22)

Gauti:

þeir keppa á móti ítölum........þar sem allir geta fengið inngöngu í konunglega leikhúsið í róm!!!!!!!vá hvað ítalía og portúgal eru leiðinleg lið.....

(08.07.06 15:32)

Torfi:

jæja þá er það búið og gott að fara að ræða eitthvað annað...

(10.07.06 08:10)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni