júlí 27, 2006

þetta helst


undanfarið hefur verið í svo mörgu að snúast, að ekki hefur gefist tími til að fjalla um það hér. það verður ekki gert í þetta skiptið heldur. en þar á meðal er gifting, langur akstur, veiði, bilanir, viðgerðir, skútur, freygátur, lærdómur, þrældómur, þistilfjörður, afmæli, þjóðhátíð, vinir, kunningjar, fjölskylda, matarboð, kokteilboð og kampavín.


... þannig var það

-mundi | 21:27 | Comments (3)

júlí 18, 2006

í dag var Lúlla, amma Svanhildar jarðsungin. það var falleg og fjölmenn athöfn.


seinnipartinn á morgun fer ég svo í sumarfrí - fram að mánudagsmorgni, og ætla að renna fyrir fisk í þistilfirðinum.


þangað til næst - góðar stundir.

-mundi | 21:12 | Comments (1)

júlí 16, 2006

Fyrirhyggjusemi eða stefna.

þegar ég var gutti stóð ég á drifskaftshryggnum í gamla rauða volvo og hélt mér í hauspúðana beggja vegna. þannig sá ég vel út. orðið reiðhjólahjálmur var held ég ekki til, því síður olnboga og hnéhlífar þegar farið var á hjólabretti eða skauta. fæstir notuðu öryggisbelti við akstur. barnabílstólar voru af einni einfaldri gerð og það var ekki barnalæsing á sápubrúsum. léttmjólk var ekki til framan af og ekki dæet kók heldur. matur var almennt með sykri og fitu. svo má lengi telja.


þetta er breytt. sumt sannarlega til hins betra. ástæðan fyrir því ég skrifa um þetta er sú að ég er að vinna fyrir ístak þessa dagna og þeir boðuðu alla á öryggisfund nú á föstudaginn. þar voru okkur kynntar nýjar reglur um öryggi á vinnustöðum. nú verðum við málarar að vinna með hjálm allan tímann. við megum ekki lengur nota heyrnarhlífar með útvarpi og því síður tala í símann. við eigum að vera í skóm með stáltá og vera í appelsínugulum vestum.


ég er alveg viss um að þessar reglur eiga ágætlega við þá sem vinna við uppsteypu á húsum. þar er verið að hífa allskonar dót og þungavinnuvélar æða um allt. þá er gott að vera sýnilegur og heyra vel.
staðreyndin er hins vegar sú að hlutverk mitt í byggingu húsnæðis er annars eðlis, allt annars. er það ekki svona óþarflega mikill viðbúnaður að vera í skærgulu vesti, með stáltá og hjálm við það að lakka glugga?? gæti reyndar misst pensilinn í tánna á mér en gott og vel... já og án útvarps þannig að ég heyri nú örugglega í steypubílnum sem er við það að bakka yfir mig á þriðju hæð.


mér finnst ekki óeðlileg krafa að við notum hjálm þegar við göngum um vinnusvæðið, en á ekki að láta menn nota sína eigin skynsemi annars lagið. eigum við ekki að fá eitthvert vald til að meta aðstæður og bregðast við, eða á að mata okkur öll á því sama. er ekki óeðlilegt þegar allt er orðið svo "reglubundið" að menn hætti að hugsa sjálfir?


eigum við valið, eða eru það þeir sem setja reglurnar???

-mundi | 21:58 | Comments (5)

júlí 4, 2006

Fótbolti

tn_kr-zinedine_zidane.jpg

þá er komið að því. ég ætla að skrifa um tuðruspark. það má öllum vera ljóst að ég hef ekki verið sérstakur áhugamaður um þá iðju í gegn um tíðina. mér hefur verið um það bil slétt sama. hef haft meira gaman af kappakstri og slíku.


nú bregður hins vegar þannig við að ég er búinn að fara og sjá 2 leiki í yfirstandandi heimsmeistarakeppni. ég hef hitt nokkra frakka í alþjóðahúsinu til að sjá fyrrum gestgjafa mína leika gegn, fyst spanjólum og síðar brasölum...


það kom mér skemmtilega á óvart að ég hef haft virkilega gaman af þessu. ég er alveg þrælspenntur og held með frökkum. þjóðin sem ég elskaði að hata en kunni síðar betur að meta. þar að auki er eini frægi frakkinn sem ég komst í návígi við meðan ég bjó í frakklandi í liðinu. það er zidane sem var rétt hjá mér á tónleikum í parís. hann reynir að gera allt eins og ég og er með sömu greiðslu og allt!!!


ég ætla að fara og sjá frakkana spila á morgun og svo ætla ég aftur á sunnudaginn að sjá þá spila úrslitaleikinn gegn þýskalandi þar sem zidane klárar feril sinn með því að skora fyrir frakka á síðustu mínútum leiksins. 1-0 og frakkar fara heim með dolluna.


Birni og Torfa er velkomið að nota kommentakerfið - hins vegar verður lítið mark á því tekið sem þeir segja þar í þetta skiptið !!! :-)

-mundi | 19:10 | Comments (14)

júlí 2, 2006

sól sól skín á mig...

tn_DSC00977.JPG

mikið agalega er mig farið að þyrsta í sól. eins og það hentar nú í raun vel að hafa skýjað og ekki heitt þegar maður er fastur inni í húsi að sandsparsla allt sumarið, þá langar mig nú bara samt í sól þegar ég á frídag. sjaldan er maður fullkomlega ánægður með veðrið.


svo langar mig líka til útlanda. við erum reyndar búin að kaupa okkur ferð til frakklands í september. það er bara svo langt þangað til....!


til að sameina þessi tvö áhugamál mín þá birti ég hér mynd af undirrituðum í dönsku sólarlagi verslunarmannahelgina 2003 .

-mundi | 22:03 | Comments (2)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni