Miðvikudagur 14. júní

Hvað er í gangi ?

ég ætla að skrifa smávegis hérna núna því þessi morgun í vinnunni var svolítið skondinn, já skondinn en samt ekki. því þegar við vinnufélagarnir vorum að tínast í hús einn af öðrum fór einn að segja okkur hvað henti á leið hans heim úr vinnu í gær.


hann, eins og við hinir er að basla við að sparsla, slípa og mála íbúðahótel niður á laugarvegi. og eins og vill nú verða þegar mikið er slípað af sandsparsli þá verður maður ansi hreint rykfalllinn, rétt eins og maður hafi dottið ofaní hveitipoka. hvítur um hár og granir.


að loknum vinnudegi steig hann upp í bílinn sinn og hélt heimáleið. á umferðarljósum skammt frá lendir hann við hliðina á lögreglubíl, hann lítur til hliðar, sér lögreglumanninn og heldur síðan áfram sinni ferð á grænu ljósi. hann er ekki kominn yfir gatnamótin þegar bláu ljósin loga og þeir stöðva hann. biðja hann að koma með sér yfir í lögreglubílinn og tala við sig. hann gerir það. þar kemst hann að því að þeir telja hann vera á kafi í kókaíni þar sem hann er hvítur um nefið. hann tjáði þeim að hann væri á leið heim úr vinnu, hann væri málari og þetta væri sandsparslryk. ekki keyptu þeir þá sögu og fóru að láta hann blása. ekkert kom út úr því. svo þeir ákváðu að láta þennan kókaíngreifa finna fyrir því niðrá stöð svo þeir óku honum þangað til nánari rannsókna. annar lögreglumannanna tók bílinn hans með þangað. þar var hann látinn blása meira og honum var tekið blóð til rannsóknar. að því loknu mátti hann fara, en ekki á bílnum, lögreglan ók honum heim, sagði að hann mætti ekki keyra bílinn, því þeir hefðu ekki niðurstöður blóðrannsóknar. bílinn sótti hann síðan um kvöldið.


þegar hann sagði okkur frá þessu í morgun þá veltumst við um af hlátri. en fljótlega fór þó umræðan að snúast um hæfni lögreglumanna og vald þeirra til að frelsissvipta fólk og taka eigur þeirra. mér finnst þetta nú vera talsvert alvörumál ef að maður getur lent í svona hremmingum ef að maður gleymir að þvo sér í framan áður en maður stígur inn í bílinn sinn og heldur heim eftir vinnudaginn. hvaða rétt hafa þeir til að gera svona? og hverju má maður þá eiga von á frá lögreglunni næst? þetta mál finnst mér allt hið undarlegasta.


að endingu sagði einn okkar við þann sem fyrir þessu varð að ef að það finndist eitthvað í blóðprufunni þá þyrfti hann sennilega að fara í mál við málningu ehf. vegna ólöglegra snefilefna í sparslinu frá þeim!


í lok dags fóru svo allir heim með hrein nef.

- mundi | 17:30
Umræður

Torfi:

... eruð þið með nefið í hvers annars koppi ?

(19.06.06 11:07)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni