Þriðjudagur 20. júní

framhaldssagan

þeir gera það ekki endasleppt lögreglumennirnir hérna í borginni. vinnufélagi minn, sá sem ég sagði frá í síðustu færslu, fékk nefnilega bréf frá löggunni í gær. í bréfinu tilkynntu þeir honum að ekkert hefði fundist áhugavert fyrir þá í blóðsýninu sem þeir tóku úr honum og væri hann því laus allra mála.


meðfylgjandi var svo 1800 kr. gíróseðill vegna kostnaðar við blóðrannsókn.


....hvers konar lögregluríki er þetta?? nú er ég ekki lögfróður maður en er ekki einhver að lesa sem veit hvort að þetta getur hreinlega staðist??? má einhver löggukall í blárri skyrtu yfir höfuð taka blóðsýni? þarf ekki læknir eða hjúkrunarfræðingur að gera það?? má bara gera svona við hvern sem er, hvenær sem er? og á svo viðkomandi að borga fyrir bullið? ég bara skil þetta ekki og er barasta reiður - já sveiattann....


djöfulsins bull

- mundi | 17:53
Umræður

Torfi:

... þetta er nú alveg fáránlegt. Alveg ómögulegt að borga þennan reikning !!!

(21.06.06 00:44)

Dagný:

Þetta er alveg ótrúlegt!!! Gjörsamlega óforskammað!
Henda þessum gíróseðli aftur í hausinn á þeim takk fyrir, ekki taka þátt í svona vitleysu!

Þetta er reyndar mjög gott útvarpsefni fyrir þátt eins og Reykjavík síðdegis - þeir voru um daginn að velta því fyrir sér hvort það væri rétt að lögreglumenn í Reykjavík bæru vopn en hlustendur samþykktu einróma að þeir væru of miklir bjánar til að geta höndlað það, en já, endilega hringja með þetta þangað inn og vekja athygli á þessu... fá amk 1800 manns til að hlæja að þessum fávitum!

(21.06.06 15:19)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni