Fimmtudagur 22. júní

endurtekið efni

tn_DSC02417.JPG


við vorum að finna geisladiskana með öllum myndunum okkar frá því þegar við bjuggum í danaveldi og svo frá þeim tíma sem við vorum að byrja að búa í frakklandi. semsagt myndir frá hitabylgju-árinu 2003. þar á meðal er þessi magnaða mynd frá búsjúlei hátíðinni í nóvember það árið. þar hittum við fyrir tvífara ásbjarnar morthens. mig minnir nú að þessi mynd hafi prýtt þessa síðu þá en hér kemur hún bara aftur til öryggis.


annars ágætt að frétta -- hér hefur stytt upp og sólin er farin að skína, svona hluta úr degi í það minnsta. nú erum við að smyrja okkur nesti, því við ætlum að taka rútu seinnipartinn á morgun til skóga og ganga yfir fimmvörðuháls aðra nótt. teljum okkur geta gengið yfir í þórsmörk á svona 10-12 tímum og ættum því að vera komin þangað í býtið á laugardag. þar munum við svo hitta georges og betu ásamt vinahóp þeirra.


áfram með smjörið...

- mundi | 20:18
Umræður

Ásdís:

Góða göngu og takk fyrir að bjóða okkur að koma með... Hefðum án ef slegið til ef ekki hefði verið búið að gera önnur plön ;)

Biz,
Ásdís

(23.06.06 08:23)

heida h:

hahaha man eftir tessari mynd;) gott ad heyra ad solin se farin ad skina...eg hefdi ekkert a moti tvi ad "lana" ykkur nokkrar gradur hedan ur svaekjunni vid Montreux:-/ goda gonguferd...eg a einmitt eina vinkonu ad nordan sem er ad fara i tessa gonguferd lika med kaerastanum sinum...gott ef tid erud ekki bara a svipudum aldri...tu (mundi) og hun (Fjola Stef...)...alla veganna hafid tad sem allra best...kaer kvedja ur hitanum og svitanum i sviss...Heida

(23.06.06 10:19)

Hildur:

Góða göngu :)

(23.06.06 20:35)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni