Miðvikudagur 10. maí

Er á bókhlöðunni...

...og nenni ekki að læra. Vildi að ég þyrfti ekki að gera þetta lokaverkefni, að ég væri bara búin núna, er ekkert að ná að detta í lærigírinn.


Þetta er önnur vikan mín í sendiráðinu og mér líst bara vel á þetta. Er að læra fullt nýtt og gengur vel. Svo er líka gaman að tala frönsku í vinnunni og vinnutíminn er frábær: 9-16 með klukkutíma hádegishléi. MAður ætti því að eiga smá læriorku eftir eftir vinnu en hún lætur eitthvað á sér standa. En morgunbirtan hefur undanfarið gefið mér orku til að fara eldsnemma á fætur og hjóla í ræktina þar sm ég púla í tæpan klukkutíma og hjóla svo í vinnuna. Finnst þetta alveg æði og hef mikla trú á að ég haldi þetta út alla vega í sumar því þá er svo auðvelt að vakna á morgnana. Hins vegar er talan á vigtinni ekkert að fara niður á við. Ég sem hélt að maður ætti að grennast mest í byrjun. En vonandi fer nú eitthvað að gerast. þetta er nú bara vika nr 2 sem ég er svona dugleg þótt ég sé búin að hjóla aðeins lengur. En kannski þarf maður eitthvað að taka mataræðiði í gegn líka, ég bara nenni því ekki, ekki strax alla vega, sjáum til hvað vigtin segir í næstu viku.


Ég ætlaði líka að segja ykkur að við Mundi fórum að sjá Fullkomið brúðkaup í Borgarleikhúsinu á mánudagskvöldið og við getum sko alveg hiklaust mælt með því. Þetta er alveg sprenghlægilegt og allir leikararnir standa sig alveg svakalega vel. Endilega gerið ykkur glaðan dag og skellið ykkur í leikhús.


Annað sem við Mundi höfum gert til að gera okkur glaðan dag undanfarið var að við fórum í göngutúr í gær og löbbuðum í gegnum Öskjuhlíð niður í Nauthólsvík. Ég hef nú ekkert verið að stunda baðferðir í Nauthólsvíkina og eftir gærdaginn þá efast ég um að ég eigi eftir að gera það mikið í framtíðinni. Ég hélt að það væri dælt fullt af heitu vatni þarna út í og þetta væri bara næstum jafn heitt og sundlaug. En það vara allavega ekkert heitt vatn í gær og ég rétt svo gat sett stóru tánna út í og var fljót að taka hana upp úr vatninu til að forðast kalskemmdir. Þó voru þarna nokkrir ofurkrakkar að synda í sjónum. Ég er kannski bara svona mikill aumingi? En ég er að vona að þetta sé kannski bara einhver misskilningur hjá mér, að það sé ekki byrjað að setja heitt vatn út í fyrr en í júní eða eitthvað svoleiðis. Vitið þið eitthvað um þetta? Það er nefnilega svo tilvalið að rölta þarna niðureftir úr Mávahlíðinni.


Jæja, best að fara að halda áfram að læra, eða kannski ég fari bara heim, er ekki að nenna þessu núna. Sé til hvað ég geri.

- Svanhildur | 17:40
Umræður

heida h:

tetta hlytur allt ad fara ad koma hja ter:) baedi lokaverkefnid og svo kiloin...eg skil tig MJOG vel med kiloin...merkilegt hvad tetta festist a manni:/ Rosalega vaeri eg samt til i ad hafa svona vinnutima tihi...ekki slaemt;) hlakka til ad heyra meira fra ykkur:) kaerar kvedjur ur solinni i Sviss!!!!! Gros bisous

(11.05.06 10:03)

Fanney:

He he ég var að byrja í BOOT CAMP shiett mæli eindregið ekki með þessu ef þér þykir vænt um sjálfa þig... borga einhverjum fyrir það að pína sig.. hverjum dettur það í hug.. ja mér og svona 30 öðrum á Bifröst... þetta er sex vikna prógramm... ég stefni á six pakk... eitt pakk á viku... gangi þér vel í ræktinni og með lærdóminn, ég var að klára 2. kúrsinn í sumarskólanum í dag, nú eru bara 5 eftir svo þetta er alveg að verða búið hehe:)

(12.05.06 09:30)

Svanhildur:

Já ég var einmitt að lesa um BOOT CAMPIÐ á síðunni þinni Fanney. Þetta er alveg svakalegt!
Gangi þér sömuleiðis vel í ræktinni og með lærdóminn.

(13.05.06 07:33)

Guðni:

MMMMUUUUUUHHHHHHHHH!!!!!!!!!!
Hér með hefur Búkolla baulað. Furðulegt nokk, þá hafði ég nóg að gera í síðustu viku. Ég var á vettvangsferð með skólanum í Digne les Bains og verð að segja að hún kom skemmtilega á óvart. Það ætti að útskýra fráhvarf mitt í síðustu viku. Annars er gaman að heyra að allt gangi vel hjá ykkur og ég er bara farinn að hlakka til að hitta ykkur aftur. Við heyrumst síðar.
Kveðja frá Grenoble

(14.05.06 12:06)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni