Fimmtudagur 4. maí

að hitta naglann á höfuðið

tn_mundakot.jpg


...er það sem hún Eva gerði í kommenti á síðasta blogg. skemmtilegt að fá svona gott kommment á arfaslaka og ódýra færslu. hún benti þar á - ÞETTA HÉR -


þar með virðist málið vera leyst - stokkseyrarbakkicity skal það vera. nú þarf bara að setja af stað landssöfnunina "Munda heim í Mundakot"


eins og oft hefur sýnt sig þá er íslenska þjóðin gjafmild á fé þegar um góð málefni er að ræða og ég er viss um að það verður engin breyting á því núna.


:-)

- mundi | 21:54
Umræður

sara:

ég er búin að skoða mundakot, mér finnst það ekkert smá sætt og eitthvað svo munda- og svansílegt. svo er það ekkert mjög dýrt svona miðað við húsverð í bænum. ég myndi kaupa mér þetta ef ég ætti pening. líka svo hæfileg fjarlægð frá bænum. en hvað um það.. maður fékk aldrei að vita hvernig félagsheimilið var?
bið hjartanlega vel að heilsa ykkur skötuhjúum. sjáumst eftir 3 vikur eða svo..
knúsar úr sólinni og 20 stiga hita.

(05.05.06 08:41)

Svanhildur:

Félagsheimilið var ágætt en þarfnast mikilla breytinga. Erum samt bara svona að skoða okkur aðeins um og ekkert alveg á leiðinni að fara að kaupa eitthvað. Svo langar okkur líka mikið til að reyna að finna eitthvað miðsvæðis. Ég bara elska að geta bara hjólað í vinnuna og svona. En eitt er víst að þó ég gæti samþykkt að flytja á Akranes þá er ég ekki á leiðinni í svona smáþorp eins og Eyrarbakka. Er sammála því að þetta er allt voða sætt en mér finnst bærinn of lítill og líka of langt frá Reykjavík og líka yfir heiði að fara sem er mínus.

Öfunda þig af sumarveðrinu og hlakka til að fá þig heim.

(05.05.06 19:11)

Bjössi:

vó vó vó...

(06.05.06 09:22)

Torfi:

Það er fallegt á Stokkseyrarbakka.... já fáðu þér smók, og sopa af kók...

(10.05.06 16:38)

Bjössi:

hverju sem það er að þakka...

(10.05.06 22:45)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni