maí 26, 2006

ÞETTA er auðvitað alveg eðlilegt í lok maí!


Annars vil ég hvetja ykkur öll til að mæta á Hlemm á morgun klukkan 13:00 og taka þátt í skrúðgöngu með verndun íslenskrar náttúru. Ef það er ekki næg ástæða til að mæta þá ættu allir þessir frábæru tónlistarmenn sem munu koma fram að vera það, en fram koma m.a. KK, Sigurrós. Benni Hemm Hemm, Gus Gus, Hjálmar og Leaves.


Sjáumst í bænum á morgun!

-Svanhildur | 15:45 | Comments (0)

maí 25, 2006

Uppstigningardagur...

tn_DSC00012.JPG


...þá stígur maður upp á fyrsta fjall sumarsins. Vífilsfell var það í þetta skiptið. Fleiri myndir eru í albúminu.

-mundi | 16:53 | Comments (2)

maí 21, 2006

Sunnudagur

tn_DSC09954.JPG


svona var umhorfs í öskjuhíðinni sl. fimmtudag þegar við röltum þar um

-mundi | 10:33 | Comments (1)

maí 17, 2006

stutt

tn_DSC09934.JPG


mér telst svo til að nú sé liðin vika frá síðustu færslu hérna. það er sennilega of langur tími. en það hefur einhvernvegin verið frekar tíðindalítið. Svanhildur sendiræðst og ég mála.


í gærkvöldi brutum við þetta þó aðeins upp og elduðum kvöldmat fyrir hluta móðurættar Svanhildar og fórum svo á tónleika léttsveitarinnar í boði Ellu. þetta heppnaðist alltsaman prýðilega.


það sem framundan er, er óráðið - enda er maður náttúrulega með óráði !!!


:-)


uppfyllingarefni dagsins er svo þessi mynd sem ég tók af fallegasta firði heims um páskana.

-mundi | 18:32 | Comments (7)

maí 10, 2006

Er á bókhlöðunni...

...og nenni ekki að læra. Vildi að ég þyrfti ekki að gera þetta lokaverkefni, að ég væri bara búin núna, er ekkert að ná að detta í lærigírinn.


Þetta er önnur vikan mín í sendiráðinu og mér líst bara vel á þetta. Er að læra fullt nýtt og gengur vel. Svo er líka gaman að tala frönsku í vinnunni og vinnutíminn er frábær: 9-16 með klukkutíma hádegishléi. MAður ætti því að eiga smá læriorku eftir eftir vinnu en hún lætur eitthvað á sér standa. En morgunbirtan hefur undanfarið gefið mér orku til að fara eldsnemma á fætur og hjóla í ræktina þar sm ég púla í tæpan klukkutíma og hjóla svo í vinnuna. Finnst þetta alveg æði og hef mikla trú á að ég haldi þetta út alla vega í sumar því þá er svo auðvelt að vakna á morgnana. Hins vegar er talan á vigtinni ekkert að fara niður á við. Ég sem hélt að maður ætti að grennast mest í byrjun. En vonandi fer nú eitthvað að gerast. þetta er nú bara vika nr 2 sem ég er svona dugleg þótt ég sé búin að hjóla aðeins lengur. En kannski þarf maður eitthvað að taka mataræðiði í gegn líka, ég bara nenni því ekki, ekki strax alla vega, sjáum til hvað vigtin segir í næstu viku.


Ég ætlaði líka að segja ykkur að við Mundi fórum að sjá Fullkomið brúðkaup í Borgarleikhúsinu á mánudagskvöldið og við getum sko alveg hiklaust mælt með því. Þetta er alveg sprenghlægilegt og allir leikararnir standa sig alveg svakalega vel. Endilega gerið ykkur glaðan dag og skellið ykkur í leikhús.


Annað sem við Mundi höfum gert til að gera okkur glaðan dag undanfarið var að við fórum í göngutúr í gær og löbbuðum í gegnum Öskjuhlíð niður í Nauthólsvík. Ég hef nú ekkert verið að stunda baðferðir í Nauthólsvíkina og eftir gærdaginn þá efast ég um að ég eigi eftir að gera það mikið í framtíðinni. Ég hélt að það væri dælt fullt af heitu vatni þarna út í og þetta væri bara næstum jafn heitt og sundlaug. En það vara allavega ekkert heitt vatn í gær og ég rétt svo gat sett stóru tánna út í og var fljót að taka hana upp úr vatninu til að forðast kalskemmdir. Þó voru þarna nokkrir ofurkrakkar að synda í sjónum. Ég er kannski bara svona mikill aumingi? En ég er að vona að þetta sé kannski bara einhver misskilningur hjá mér, að það sé ekki byrjað að setja heitt vatn út í fyrr en í júní eða eitthvað svoleiðis. Vitið þið eitthvað um þetta? Það er nefnilega svo tilvalið að rölta þarna niðureftir úr Mávahlíðinni.


Jæja, best að fara að halda áfram að læra, eða kannski ég fari bara heim, er ekki að nenna þessu núna. Sé til hvað ég geri.

-Svanhildur | 17:40 | Comments (4)

maí 4, 2006

að hitta naglann á höfuðið

tn_mundakot.jpg


...er það sem hún Eva gerði í kommenti á síðasta blogg. skemmtilegt að fá svona gott kommment á arfaslaka og ódýra færslu. hún benti þar á - ÞETTA HÉR -


þar með virðist málið vera leyst - stokkseyrarbakkicity skal það vera. nú þarf bara að setja af stað landssöfnunina "Munda heim í Mundakot"


eins og oft hefur sýnt sig þá er íslenska þjóðin gjafmild á fé þegar um góð málefni er að ræða og ég er viss um að það verður engin breyting á því núna.


:-)

-mundi | 21:54 | Comments (5)

maí 3, 2006

jæja

svaðamikið að gera


meira seinna.....

-mundi | 21:52 | Comments (3)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni