Mánudagur 10. apríl

Góð helgi að baki og betri framundan

Helgarfríið hófst að venju með ferð í Bónus og Vínbúðina og svo var farið heim að elda indæliskvöldverð og opnuð ein hvítvín. Mundi fór svo eldsnemma á fætur á laugardaginn og fór að vinna en ég svaf aðeins lengur og fór svo í páskakaffi til ömmu, það var þvílík veisla og mjög gott að troða sig út af brauðtertum áður en lagt var af stað upp í Bláfjöll með pabba og Söru. Þar skíðuðum við á fullu í blíðunni og það var alveg meiriháttar. Ég var nú alveg búin á því um kvöldið og langaði mest til að fara bara snemma í háttinn en ákvað að vera ekki svona mikill aumingi, skellti mér í sturtu til að hressa mig við og fór á djammið með Hildi, Unni og Halldóru. Það var svaka stuð og staðirnir þræddir til að ganga fjögur. Ég er orðin svo léleg í þessu djammi og veit ekkert ömurlega en að bíða í röð í skítakulda svo að í þau fáu skipti sem ég fer í bæinn þá fer ég bara á einhvern einn stað og held mig þar. En stelpurnar kenndu mér inn á hið svokallaða "pöbbarölt" á laugardagskvöldið og það vara bara ekki svo slæmt, við lentum aldrei í neinum röðum og ég fattaði fullt af nýjum skemmtilegum stöðum og á til dæmis alveg pottþétt eftir að fara bráðum aftur á Ara í Ögri. Alveg snilld að fara á stað þar sem eru svona trúbadorar og allir syngja hástöfum.


En ég var sem sagt ekki komin í háttinn fyrr en að ganga fimm og mér varð því ekki mikið úr verki í gær, engin þynnka en ég var verulega þreytt. En það var bara fínt að eyða sunnudeginum í leti fyrir framan sjónvarpið.


Svo ætla ég að vera svaka dugleg að læra í dag og á morgun því að næsta helgi hefst á miðvikudaginn með Norðurför.

- Svanhildur | 11:49
Umræður




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni