Miðvikudagur 26. apríl

Fréttayfirlit

1. Ég er búin að vera hálfveik undanfarið og nú þegar ég er að hressast er Mundi laggstur. Eins og venjulega þá verður maður veikur þegar maður má ekki vera að því en Mundi hefur varla sést heima undanfarna daga vegna vinnu og það lítur ekkert út fyrir að þetta sé neitt að róast. En maður á sennilega ekki að vera að kvarta yfir því, alla vega ekki ef maður ætlar að fara að fjárfeta í húsnæði, og þá komum við einmitt að frétt nr. 2:


2. Á morgun erum við að fara að skoða félagsheimilið á Skaganum.


3. Þetta er síðasta vikan mín í MR, er á fullu í yfirsetum og svo líka að kenna smá og fylgjast með munnlegum prófum. Yfirseturnar eru ekki sem verstar því þá gef ég mér tíma í að lesa Draumalandið hans Andra Snæs sem er án efa ein mikilvægasta bók sem hefur komið út undanfarin ár. Auk þess er hún alveg bráðskemmtileg.


4. Þar sem þetta er síðasta vikan mín í MR þýðir það að ég er að fara að byrja í Sendiráðinu á þriðjudaginn. Mikill spenningur í maganum yfir því.


Fréttir verða næst sagðar síðar!

- Svanhildur | 10:06
Umræður

Birta:

Hæ Svanhildur mín. Bara að kvitta fyrir mig og láta vita að ég kíki alltaf reglulega hér inn. Alltaf jafn gaman að fá fréttir af ykkur og skoða myndir. Gangi ykkur allt í haginn, kossar og knús, þín vinkona Birta.

(26.04.06 12:48)

sara:

hæ. bara spennandi hlutir að gera. finn til með þér í sambandi við flensuna. vona að þú getir farið á ról helst í gær.
ég vissi ekki að þetta með félagsheimilið væri alvara..hélt að mundi væri eitthvað að fíflast þarna um daginn. en ekki það, ég skoðaði húsið á netinu og mér finnst það bara líta vel út. ætliði þá að innrétta það sem íbúð?
bestu kveðjur til þín og munda,
kossar og knúsar

(26.04.06 15:35)

Svanhildur:

Birta: En gaman að "sjá " þig hérna. Ertu eitthvað á leið í bæinn á næstunni? Það er nú alveg kominn tími á eitt "frönskukvöld" finnst mér.

Sara: Það er nú búið í þessu húsi í dag svo að þetta er alveg eins innréttað sem íbúð en hins vegar væri hægt að gera þetta miklu skemmtilegra en þetta er í dag. En þetta kemur bara allt betur í ljós, sérstaklega eftir að við kíkjum á þetta á morgun og sjáum hvort okkur líst eitthvað á þetta eða ekki.
Ég þakka líka samúðina með flensuna, veit að þú skilur mig. En ég hef nú ekkert lagst í rúmið, bara búin að vera með 38 gráður og kvef og hef alveg verið á róli. Mundi hins vegar virðist ætla að fá aðeins verri útgáfu af þessari pest og er búinn að vera í rúminu í allan dag.

(26.04.06 18:05)

torfi:

... spennandi að heyra hvernig félagsheimilið kemur út. sumum hefur reynst vel að kaupa félagsheimili :-)

(27.04.06 13:52)

Friðrika Björk:

Hæ Svanhildur.
Rambaði hingað inn fyrir stuttu og er alltaf að stelast til þess að njósna um þig.
Gott að heyra að það gangi vel. Það hljómar eitthvað yndislega að búa í félagsheimili. Teddi minn bjó nú lengi á Freyvangi og fannst það mikið fjör, en það var kannski öðruvísi. Mamma og pabbi eiga appelsínugula og græna kassa húsið á skaganum, við torgið. Ég er alveg að fíla Akranes, fallegur og kósý bær.
Ég verð heima í sumar, ættum endilega að reyna hittast í kaffi eða jafnvel gerast svo kræfar að fá okkur bjór......
Kisses frá Jönköping
Friðrika

(28.04.06 20:58)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni