Mánudagur 6. mars

sitt og hvað

helgin sem leið var vinnuhelgi og vel heppnuð sem slík og endaði með pompi og pragt með matarbjóði hér í máva fyrir fólkið sem býr við lækinn. við snæddum hér saman raclette að frönskum sið í gærkveldi með þeim kópavogsbúunum. Ella var nú ekki heil heilsu, hún var með brotinn fingur eftir vettvangsferð á vegum háskólans fyrr um helgina. við afréðum því að reyna að létta henni lundina og flýta fyrir batanum með góðum frönskum mat.


annars er ekki frá mjög mörgu að segja, vinna borða sofa vikan var sú sem leið og fátt merkilegt sem gerist á meðan. á næstunni þurfum við hinsvegar að fara að huga að farmiðakaupum til frakklands því að það er komin dagsetning á vörnina hjá svanhildi í grenoble.

PS. Guðni ef þú lest þetta, hvernig gengur með telemarkinn???? jesús minn hvað mig langar á skíði. :)


- mundi | 17:09
Umræður

Fanney:

Vá hvað ég öfunda ykkur að vera komin heim, búin með námið og farin að lifa EÐLILEGU lífi.

Mig er farið að langa í venjulega vinnuviku frá svona 9-3 (bara létt á því, ég ætla að verða svo rík nebbla) og FRÍ UM HELGAR.

Öfund hérna megin, ég kemst á þetta stig vonandi eftir 1 ÁR.

Wish me luck.

Gangi þér vel í vörninni Svanhildur, þú massaredda :)

(07.03.06 09:24)

torfi:

... skíða á Kaldbak, ég skal skutla þér upp ;-)

(07.03.06 20:08)

Asdis Joh.:

Komid thid i juni?

(08.03.06 11:36)

Svanhildur:

Við reiknum með að verða úti frá 5. til 16. júlí. Ég á að verja 7.

(08.03.06 12:23)

mundi:

Fanney: 9 til 3. dream on! og svo er óvenjulegt líf þar að auki mun áhugaverðara en dagleg rútína, það er ljóst.
Ziggy: klárlega töskuberi, trúlega stuðningsaðili
Torfi: farðu bara að taka bensín - er á leiðinni von bráðar

(08.03.06 17:27)

H. Íris B.:

Sælir nágrannar,...alltaf gaman að skoða síðuna ykkar, fullt af skemmtilegum myndum og svoleiðis. Ég fer svo lítið út úr húsi þessa mánuðina að ég les nokkur blogg daglega svona til að halda tengslum við veröldina fyrir utan ehe. Hafið það gott.
Kv. H l a l l a.
P.s. Langar ykkur ekki að brydda upp á nýjungum og hafa einn listalink á síðunni......

(09.03.06 11:01)

Svanhildur:

Blessuð Hlalla, vissi ekki að þú litir við hér öðru hvoru. Er að sjálfsögðu búin að setja link á síðuna þína en hann birtist ekki fyrr en það kemur ný færsla á bloggið. Svo að ég ákvað að ég þyrfti nú að skrifa eitthvað, bæði til að fá linkinn og líka bara af því það er ansi langt síðan ég hef bloggað en ég hef barasta frá engu að segja, Það vantar allt fútt hjá okkur eftir að við komum aftur heim og allt gengur bara sinn vanagang. Spurning um að fara að drífa sig eitthvað til útlanda aftur til að hafa frá einhverju að segja.

(09.03.06 12:17)

Guðni:

Það hefur verið heldur lítið um telemark uppá síðkastið vegna mikillar mjöðs drykkju í Þýskalandi sem leiddi af sér veikindi í Frakklandi. Þetta er eitthvað bogið. En nú er búið að snjó helling í fjöllinn og því stendur allt þetta telemarkleysi til bóta. Ég gef skýrslu um leið og ég hef lokið framkvæmd. Hafið það gott á klakanum og ég verð að segja að það væri gaman að geta farið með ykkur á skíði.
Við sjáumst.

(09.03.06 13:00)

H.Iris.B.:

Hæ aftur, já það segi ég það sama, ég hef aldrei að segja þegar fólk spyr um hvað ég hafi nú verið að gera. Ég bara mála, allan daginn, alla daga og þannig verður það þangað til sýningin opnar í júní. Eg get varla beðið eftir nokkrum dögum þar sem ég get legið með tærnar upp í loft og sofið og sofið og sofið. En þegar þú svo hefur lokið við að verja ritgerðina þá verðum við nú að hittast og grilla eða hafa pikknikk í garðinum, er það ekki?

Kveðja. H L A L L A

(09.03.06 14:46)

svanhildur:

Jú endilega, líst rosa vel á pikknikk í sumar.

(09.03.06 18:09)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni