leikhús allra landsmanna
ég ætla að skella mér í þjóðleikhúsið á morgun. svanhildur fær ekki að fara með í þetta skiptið. ég efast reyndar um að hún hafi áhuga þar sem ég mun verða þar daglangt í hvíta gallanum baksviðs, að leiðrétta 5 villur í vegg. já ekki laust við að pensill sé hafður um hönd þessa dagana, skárra væri það nú.
sísý mall er komin á netið. tími til komin hjá þeirri kjarnakonu og óska ég henni velgengni með síðuna sína. linkur á hana er kominn hér til hliðar hafi mér ekki farið þeim mun meira aftur á netlausatímanum ;)
Svanhildur:
Hún Sísý er nú komin með tvo linka hjá okkur þar sem ég var búin að bæta henni inn í gærmorgun.
(02.03.06 08:45)