Sunnudagur 19. mars

fréttaskeyti úr mávahlíð

af okkur er þetta helst síðustu vikuna:


Svanhildur hefur sinnt sínum störfum í MR ásamt því að sinna undirbúningi keppni frönskunema á vegum sendiráðisins og alliance francaise. Einnig hafa verið ýmsar hreyfingar hjá henni varðandi atvinnu - hún segir kannski betur sjálf frá því seinna þegar endaleg ákvörðun hefur verið tekin, það er í deiglunni í augnablikinu.


ég sjálfur hef haldið fast á penslinum og málað fyrir borgarverkfræðing. einnig hef ég verið í ritstörfum en ég var beðinn um að skrifa grein í blað iðnnemasamtakanna. þess utan hef ég talað um og vorkennt Volfgang okkar því hann þarf að fara á spítala sem fyrst. það eru ýmsir sjúkdómar, öldrunar fremur en barna held ég, að hrjá garminn. held að yfirlestaðar langferðir hafi móðgað hann og nú vilji hann athygli. Því þarf að sinna fyrr en seinna. því ákalla ég nýbakaðann íslandsmeistara (eða er það mývatnsmeistari??) í ísspyrnu, já Björn er sigurvegari dagsins og sýndi það og sannaði í dag að hann er besti ökumaðurinn og á kraftmesta vélsleða Íslands, kom sá og sigraði. Til hamingju með það Bjössi, verðlaunin frá mér eru þau að þú færð að gera við bílinn minn um leið og ég kem mér norður yfir heiðar. ;) mikill heiður það ....


Annars allt í góðu, þegar þetta er skrifað er vömbin kýld eftir matarveislu í Lækjarhjallanum, þar sem heimalingurinn var etinn og skolað niður með rauðum vínum og kaffi og konjaki á eftir. Farinn í háttinn


Góðar stundir

- mundi | 00:33
Umræður

Bjössi:

þakka hlý orð í minn garð...og ég verð nú ekki í vandræðum með að smíða þennan volvo fyrir þig, þó það sé ekki nokkur vafi að Torfi er mun reyndari á þeim velli...ég held að það liggji svona 17 stykkur undir núna hjá honum;)

(20.03.06 21:40)

mundi:

já við erum að tala um að maðurinn safni volvóum... hann vantar bara konunginn í safnið - Lapplander

(20.03.06 22:03)

Bjössi:

já...eða jafnvel bara alls ekki...

(21.03.06 16:21)

Ziggy Flotti:

Jú maður þarf að eiga þrjá slíka ekki færri!! :-)

Góður Björn!!

(23.03.06 17:24)

gauti:

Til hamingju Bjössi!

(27.03.06 14:46)

Torfi:

Björninn vann þettta örugglega...

.. á að skrifa um franska iðnaðarmennsku í iðnnemablaðið :)

(31.03.06 08:44)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni