mars 26, 2006
Suðurnes

á sunnudegi er upplagt að skella sér í stuttan bíltúr að reykjanesvita. hér eru sýnishorn.
mars 23, 2006
Nýja vinnan mín
Það er mikið búið að ganga á hjá mér undanfarna daga. Eins og Mundi sagði í síðasta pistli þá fór töluverður tími í síðustu viku í að undirbúa nemendur fyrir ljóðakeppni. Fyrst var haldin undankeppni hér í MR og tveir bestu fengu að taka þátt í aðalkeppninni sem var haldin í Alliance Francaise á laugardaginn. Keppendurnir "mínir" stóðu sig alveg frábærlega og lentu í 2. og 4. sæti.
En svo var líka alveg svakalega mikið búið að vera um að vera í vinnuvali. Ég var nokkurn vegin búin að ákveða að fara aftur að vinna á ferðaskrifstofunni í sumar svo framarleg að þau væru tilbúin að veita mér ágætislaunahækkun. En á miðvikudaginn í síðustu viku fékk ég mail frá franska sendiráðinu þar sem stóð að þau væru að leita að fólki í afleysingar. Ég hringdi strax í sendiráðið til að tékka betur á þessu og fékk þá að vita að um væri að ræða afleysingar í bókhaldi frá 2. maí og út ágúst. Ég ákvað að reyna ekki að sækjast eftir þessu starfi þar sem að bókhald er ekki að heilla mig mikið og svo vildi ég helst ekki byrja að vinna fyrr en í júní til að geta unnið að ritgerðinni minni í maí og svo þurfti ég líka að fá smá frí í júlí til að fara til Frakklands að verja ritgerðina.
Ég hringdi því í GJ og lagði fram mínar launakröfur en þau voru þegar búin að samþykkja það að ég byrjaði ekki að vinna fyrr en 1. júní og fengi smá frí í júlí. Þau ætluðu aðeins að ræða málið en sögðu mér að reikna með að ég yrði ráðin á þeim kjörum sem ég vildi því þau vantaði mannskap og vildu gjarnan fá mig aftur. Tveimur klukkutímum eftir að ég talaði við GJ bönkuðu Eydís (frönskukennari í MR) og Friðrik maðurinn hennar á dyrnar hjá okkur með þær fréttir að það væri búið að breyta þessu starfi hjá Sendiráðinu og nú væri um að ræða 4 mánuði í bókhaldinu og svo framtíðarstöðu í Menningardeildinni. Þá var málið orðið allt öðruvísi því að mér leist svaka vel á þessa stöðu í menningardeildinni. Ég sendi því Sendiherranum mail og CV og skömmu síðar var hringt í mig frá Sendiráðinu og ég boðuð í viðtal á föstudaginn. Á fimmtudeginum fæ ég svo símtal frá GJ um að ég fái þau laun sem ég bað um og að þau hlakki til að fá mig. Ég var komin í þvílíka klípu, var búin að vera að vona að þau myndiu ekki hafa samband við mig fyrr en ég væri búin að fara í viðtal hjá Sendiráðinu svo að ég gæti bara sagt þeim strax hvort ég færi að vinna hjá þeim eða ekki en þarna þurfti ég að fara að útskýra að þetta hefði komið upp á og ég gæti ekki svarað alveg strax því ég væri að fara í viðtal og bla bla bla. Mér fannst þetta allt frekar erfitt og fannst ég vera svolítið að bregðast þeim hjá GJ og svona en á sama tíma fannst mér auðvitað alveg frábært að hafa svona val um tvo góða kosti.
Ég fór svo í viðtal hjá sendiherranum og það gekk allt mjög vel og þau vildu ráða mig. ég tók mér svo helgina í að hugsa málið og ræða um þetta við Munda og mömmu og Eydísi og svona. Niðurstaðan varð svo að ég er að fara að vinna í sendiráðinu og hlakka mikið til. Ég verð reyndar að breyta plönunum töluvert þar sem ég verð að byrja að vinna 2. maí. Í rauninni á ég að vera hér í MR til 26. maí en Eydís og Yngvi rektor eru búin að vera alveg frábær og hliðra aðeins til fyrir mig. Svo get ég ekki fengið frí í júlí til að fara út og verja og auk þess yrði það ansi erfitt að klára ritgerðina með fullri vinnu í maí. Ég er því búin að hafa samband við leiðbeinandann minn úti og mun verja í lok september.
Það er sem sagt margt búið að breytast á undanförnum dögum og spenanndi tímar framundan!
-Svanhildur
| 14:37
| Comments (9)
mars 19, 2006
fréttaskeyti úr mávahlíð
af okkur er þetta helst síðustu vikuna:
Svanhildur hefur sinnt sínum störfum í MR ásamt því að sinna undirbúningi keppni frönskunema á vegum sendiráðisins og alliance francaise. Einnig hafa verið ýmsar hreyfingar hjá henni varðandi atvinnu - hún segir kannski betur sjálf frá því seinna þegar endaleg ákvörðun hefur verið tekin, það er í deiglunni í augnablikinu.
ég sjálfur hef haldið fast á penslinum og málað fyrir borgarverkfræðing. einnig hef ég verið í ritstörfum en ég var beðinn um að skrifa grein í blað iðnnemasamtakanna. þess utan hef ég talað um og vorkennt Volfgang okkar því hann þarf að fara á spítala sem fyrst. það eru ýmsir sjúkdómar, öldrunar fremur en barna held ég, að hrjá garminn. held að yfirlestaðar langferðir hafi móðgað hann og nú vilji hann athygli. Því þarf að sinna fyrr en seinna. því ákalla ég nýbakaðann íslandsmeistara (eða er það mývatnsmeistari??) í ísspyrnu, já Björn er sigurvegari dagsins og sýndi það og sannaði í dag að hann er besti ökumaðurinn og á kraftmesta vélsleða Íslands, kom sá og sigraði. Til hamingju með það Bjössi, verðlaunin frá mér eru þau að þú færð að gera við bílinn minn um leið og ég kem mér norður yfir heiðar. ;) mikill heiður það ....
Annars allt í góðu, þegar þetta er skrifað er vömbin kýld eftir matarveislu í Lækjarhjallanum, þar sem heimalingurinn var etinn og skolað niður með rauðum vínum og kaffi og konjaki á eftir. Farinn í háttinn
Góðar stundir
mars 12, 2006
Aksjónhelgi

þessi helgi hefur sko verið aksjónhelgi hjá okkur. það byrjaði með því að við fórum út að borða á Thorvaldsen á föstudaginn og fylgdum því svo eftir með leikhúsferð í Tjarnarbíó og sáum leikfélag MR sýna Birting. Það var alveg konungleg skemmtun. svo fórum við heim að sofa og vöknuðum snemma og fórum á skíði í bláfjöllum. úr bláfjöllum var svo farið í kringluna og þaðan í sumarbústað við apavatn en þangað höfðu eiríkur og helga boðið okkur og áttum við góða kvöldstund saman þar, sem innihélt þríréttaða máltíð, rauðvín, ferð á lokaða sveitakrá, spjall við næturvörðinn Heiðu, pottun og fleira. alveg frábært - takk fyrir okkur.
um hádegi var svo spænt af stað í borgina því við fórum á tónleika í háskólabíó en þar var Gauti að spila með öðrum kópavogsbúum.
nú ætla ég að taka því rólega...
mars 9, 2006
mér finnst svo merkilegt hvað tíminn líður allt í einu hratt. það er bara augnablik síðan ég setti hérna inn færslu. eftir að hafa skoðað dagatal annars lagið finnst manni allt mun hraðara þegar þarf að notast við klukku. í grenoble var matartími hjá mér þegar ég var svangur og háttatími þegar ég var þreyttur.
ég er að reyna að vinna í því að fá sólarhringinn lengdan, ekki til þess að vinna meira heldur til þess að bæta við dauða tímann. :)
svo er ég að spá í að fara norður á næstunni. hvenær - óvíst.
mars 6, 2006
sitt og hvað
helgin sem leið var vinnuhelgi og vel heppnuð sem slík og endaði með pompi og pragt með matarbjóði hér í máva fyrir fólkið sem býr við lækinn. við snæddum hér saman raclette að frönskum sið í gærkveldi með þeim kópavogsbúunum. Ella var nú ekki heil heilsu, hún var með brotinn fingur eftir vettvangsferð á vegum háskólans fyrr um helgina. við afréðum því að reyna að létta henni lundina og flýta fyrir batanum með góðum frönskum mat.
annars er ekki frá mjög mörgu að segja, vinna borða sofa vikan var sú sem leið og fátt merkilegt sem gerist á meðan. á næstunni þurfum við hinsvegar að fara að huga að farmiðakaupum til frakklands því að það er komin dagsetning á vörnina hjá svanhildi í grenoble.
PS. Guðni ef þú lest þetta, hvernig gengur með telemarkinn???? jesús minn hvað mig langar á skíði. :)
mars 1, 2006
leikhús allra landsmanna
ég ætla að skella mér í þjóðleikhúsið á morgun. svanhildur fær ekki að fara með í þetta skiptið. ég efast reyndar um að hún hafi áhuga þar sem ég mun verða þar daglangt í hvíta gallanum baksviðs, að leiðrétta 5 villur í vegg. já ekki laust við að pensill sé hafður um hönd þessa dagana, skárra væri það nú.
sísý mall er komin á netið. tími til komin hjá þeirri kjarnakonu og óska ég henni velgengni með síðuna sína. linkur á hana er kominn hér til hliðar hafi mér ekki farið þeim mun meira aftur á netlausatímanum ;)