Miðvikudagur 1. febrúar

smá fréttir

Maður er ekki eins nenninn að skrifa hér á bloggið eftir að maður er kominn heim en ég ætlaði mér nú samt að reyna að halda þessu eitthvað áfram. Í dag verða fréttirnar þó eingöngu á skeytaformi.


1. Ég er byrjuð að kenna og það gengur bara voða vel og mér finnst þetta alveg ofsalega skemmtilegt. Held ég taki mig bara ágætlega út í kennarastarfinu :-)


2. Við Mundi erum að fara að leigja í Mávahlíðinni. Flytjum annað hvort um helgina eða rétt eftir helgi.


3. Ég er komin með íslenskt gsm númer en er að sjálfsögðu búin að gleyma hvað það er, minnir samt að það hafi verið 869 2501. Þið getið alla vega prufað það og gáð hvort ég svari :-)


Sem sagt ekkert nema góðar fréttir og ekki yfir neinu að kvarta og ekkert að röfla um. Held það sé því bara best ég fari að hætta þessu og haldi áfram að undirbúa kennsluna, er með fjóra bekki á morgun.

- Svanhildur | 14:55
Umræður

Eva Hlín:

Til hamingju með íbúðarmálin - er þessi íbúð búin húsgögnum eða viljið þið fá eldhúsborð og kolla hjá okkur?

(02.02.06 15:02)

sara:

til hamingju með íbúðina! og starfið. frábært að þér skuli líka kennarastarfið.. það er þörf á góðum kennurum :)
vona að allt gangi vel með flutninga og svoleiðis. hlalla býr þarna í næstu götu við þig, í stigahlíðinni svo kannski rekstu eitthvað á hana.
knúsar

(03.02.06 09:45)

svanhildur:

Ég þakka tilboðið um eldhúsborð og kolla Eva. Annars eru M&P líka búin að bjóða okkur gamla eldhúsborðið sitt og stólana og ég held við tökum það bara en það er kannski best að ég spurji Munda hvað hann vill áður en ég afþakka þetta alveg.
Við verðumí bandi með þetta, og til hamingju með að vera búin að selja.

(03.02.06 10:09)

hanna systir:

Frábært að þér gangi svona vel í kennslunni ;) Gott líka að vita af því að ykkar hagir eru góðir þessa daga (og verða það vonandi um alla framtíð!) Sjáumst vonandi einhverntíman við tækifæri.. ég er meira að segja að koma suður núna 24febrúar og aldrei að vita nema maður sníkji mat eða bara heimsókn! :D Sjáumst!

(07.02.06 23:53)

sara:

búiði í mávahlíð 27?
það er sko skemmtileg tilviljun...eða kaldhæðin.

(08.02.06 17:14)

svanhildur:

Sara: Hvað er merkilegt við Mávahlíð 27?
Við búum í 47.

(09.02.06 11:30)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni