Föstudagur 17. febrúar

Aumingja Sara frænka sem liggur slösuð í sófanum í Danmörku og horfir á sjónvarpið var að kvarta yfir að það væri ekki nóg skrifað hérna á síðuna. Þar sem hún á bágt þessa stundina þá get ég ekki annað en orðið við ósk hennar en vandamálið er að ég hef ekki frá neinu að segja. Ég dáist að öllum þeim sem eru á Íslandi og geta haldið úti skemmtilegum bloggsíðum með reglulegum skrifum. Ég var nú svo sem aldrei jafn dugleg við að skrifa og Mundi en eftir að við komum heim finnst mér ég aldrei hafa neina ástæðu til að skrifa á þetta blogg. En kannski hefur fólkið í útlöndum, eins og Sara og Tengdó gaman af því að fylgjast með þessu bloggi okkar og þess vegna ætlaði ég nú að reyna að halda þessu eitthvað áfram.


En eftir að við komum heim þá er lífið orðið eitthvað svo ofurvenjulegt: Við förum bæði í vinnuna á morgnanna og komum heim á kvöldin. Stundum skreppur maður í Bónus eða Ikea og svo er glápt á Imbann á kvöldin. Kíktum í bæinn á laugardagskvöldið og það var allt í lagi en ég alls ekki að nenna einhverju pöbbarölti. Wwoooowww, er að átta mig á því nú þegar ég er að skrifa þetta að þetta gengur ekki lengur, við verðum að fara að gera eitthvað meira skemmtilegt. En ég er samt alltaf ógeðslega þreytt eftir vinnudaginn. Þó mér finnist þetta mjög gaman þá tekur þetta á og ég er ekki enn byrjuð að skrifa lokaverkefnið mitt. Er einmitt núna á Bókhlöðunni en það hefur ekki gengið vel í dag. Held það sé best ég hætti þessu, þetta er allt of niðurdregið, verð líka að drífa mig í dans en það er ljósi punkturinn hjá mér þessa dagana: Mæti núna í danstíma í Laugum 3 kvöld í viku og það er alveg æði.


Góða helgi!

- Svanhildur | 17:15
Umræður

sara:

takk takk fyrir skrifin. gott að hafa eitthvað skemmtilegt að lesa.
gott hjá þér að vera í dansi. það er svo gefandi og endurnærandi.
bið ofsa vel að heilsa og góða helgi. endilega drífið ýkkur á smá djamm og dansið af ykkur lappirnar! :)
knúsar

(17.02.06 23:10)

Guðni:

Það er alltaf gaman að heyra frá ykkur. Þó ykkur þyki það ekkert sérstaklega merkilegt þá er nú samt gaman að heyra af því. Auk þess gerir fjarlægðin fjöllin blá.

Kveðja úr fjöllunum, sem eru öll að fyllast af snjó.

(19.02.06 23:52)

svanhildur:

Ohhhh já mig langar svo á skíði!!!
Allt autt hérna en kannski maður drífi sig bara norður næstu helgi ef snjórinn nær eitthvað að haldast þar. Við Mundi erum komin með fráhvarfseinkenni af skíðaþörf.

(20.02.06 13:06)

Sísý:

Mikið væri nú gaman að fá ykkur norður!! Skíðasnjórinn er að vísu á bak og burt úr Hlíðarfjallinu en þá er bara að skella sér á Kaldbak eða e-ð álíka;)

(23.02.06 11:20)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni