febrúar 27, 2006

hæhæ

við erum nú loksins, loksins orðin nettengd og þar með komin með heimasíma. hann er 562-8074.


skrifa meira við fystu hentugleika - en nú ætla ég að uppfæra skypeið og vírusvarnirnar ásamt því að fara í sturtu!

bolludagsheilsur

M

-mundi | 21:19 | Comments (4)

febrúar 23, 2006

Vinnuvikan á enda

já þið lásuð rétt, ég er svo heppin að vera í fríi á föstudögum. Eða ég er alla vega ekki að kenna. Hingað til hafa föstudagarnir hjá mér farið í að skipuleggja kennslu næstu viku en nú er ég bara búin að því og ætla mér að hefja skriftir á morgun.


Við erum hætt við Norðurferð í bili sökum sumarveðurs en það verður pottþétt farið næstu snjóhelgi. Helgin stefnir þrátt fyrir það í að verða hin besta þar sem Jón og Guðrún eru búin að bjóða sér í mat til okkar og þar með er ljóst að það verður mikið stuð og mikið gaman.


Við fengum pakka frá Danmörku í gær. Ég lenti einu sinni í því á djamminu í Grenoble að það voru slagsmál á barnum og ég datt í gólfið og fína dýra uppáhaldspeysan mín rifnaði. Hún var svo sett í viðgerð hjá tengdó og hún er sko búin að breyta rifinni peysu í listaverk; faldi gatið bara með þvílíkt flottum pallíettuskreyttum blómum. Kærar þakkir fyrir þetta Magga, peysan er alveg æði!


Bon week-end!

-Svanhildur | 16:28 | Comments (2)

febrúar 17, 2006

Aumingja Sara frænka sem liggur slösuð í sófanum í Danmörku og horfir á sjónvarpið var að kvarta yfir að það væri ekki nóg skrifað hérna á síðuna. Þar sem hún á bágt þessa stundina þá get ég ekki annað en orðið við ósk hennar en vandamálið er að ég hef ekki frá neinu að segja. Ég dáist að öllum þeim sem eru á Íslandi og geta haldið úti skemmtilegum bloggsíðum með reglulegum skrifum. Ég var nú svo sem aldrei jafn dugleg við að skrifa og Mundi en eftir að við komum heim finnst mér ég aldrei hafa neina ástæðu til að skrifa á þetta blogg. En kannski hefur fólkið í útlöndum, eins og Sara og Tengdó gaman af því að fylgjast með þessu bloggi okkar og þess vegna ætlaði ég nú að reyna að halda þessu eitthvað áfram.


En eftir að við komum heim þá er lífið orðið eitthvað svo ofurvenjulegt: Við förum bæði í vinnuna á morgnanna og komum heim á kvöldin. Stundum skreppur maður í Bónus eða Ikea og svo er glápt á Imbann á kvöldin. Kíktum í bæinn á laugardagskvöldið og það var allt í lagi en ég alls ekki að nenna einhverju pöbbarölti. Wwoooowww, er að átta mig á því nú þegar ég er að skrifa þetta að þetta gengur ekki lengur, við verðum að fara að gera eitthvað meira skemmtilegt. En ég er samt alltaf ógeðslega þreytt eftir vinnudaginn. Þó mér finnist þetta mjög gaman þá tekur þetta á og ég er ekki enn byrjuð að skrifa lokaverkefnið mitt. Er einmitt núna á Bókhlöðunni en það hefur ekki gengið vel í dag. Held það sé best ég hætti þessu, þetta er allt of niðurdregið, verð líka að drífa mig í dans en það er ljósi punkturinn hjá mér þessa dagana: Mæti núna í danstíma í Laugum 3 kvöld í viku og það er alveg æði.


Góða helgi!

-Svanhildur | 17:15 | Comments (4)

febrúar 9, 2006

Fréttir af flutningum og líkamsrækt

Enn allt gott að frétta af okkur skötuhjúunum. Ég er samt alveg komin með leið á að flytja, sjitt hvað það er leiðinlegt. Erum ekki enn búin að koma öllu draslinu okkar fyrir enda spurning um hvort það sé eitthvað hægt þar sem plássið er lítið en dótið er mikið. En þetta er auðvitað bara spurning um að rumpa þessu af og kannski við reynum að gera það seininpartinn. Mundi er búinn að mála og við erum búin að kaupa ýmislegt smádrasl í Ikea, fyndið að maður fer og kaupir meira drasl til að koma draslinu sem maður á fyrir. Við keyptum sem sagt skóhillu og stöng með krókum á sem búið er að hengja upp inni í eldhúsi svo að við getum hengt upp á vegg það sem kemst ekki í skúffur, sniðugt ekki satt? En svona í alvörutalað þá held ég að þetta verði bara voða fínt hjá okkur þegar við verðum loksins búin að ganga frá öllu á sinn stað og hengja myndir á veggina og svona.


Í gær gaf ég mér svo loksins tíma til að hefja líkamsræktarátakið mitt. Fór með Hildi í Laugar og er að fara að fjárfesta í 9 mánaða korti þar. Fór með henni í Powerjóga sem er tími fyrir ofurfólk. Eftir hálftíma þorði ég ekki að vera lengur með í tímanum af hræðslu við að geta ekki labbað í dag sökum harðsperra því þetta var svo drulluerfitt. Eyddi því seinni hálftímanum á hlaupabrettinu og komst að því að ég þarf að verða mér úti um svona græju til að setja í eyrun og geta heyrt það sem fram fer á öllum þessum sjónvarpskjám þarna. Annars þá kom það mér skemmtilega á óvart að ég er bara með pínku harðsperrur í dag svo að ég held ég fari bara bráðum aftur í Powerjóga og verði næst í 45mín. Innan tíðar verð ég farin að geta haldið klukkutímann út, orðin grönn og glæsileg, liðug og vöðvastælt!

-Svanhildur | 12:48 | Comments (4)

febrúar 1, 2006

smá fréttir

Maður er ekki eins nenninn að skrifa hér á bloggið eftir að maður er kominn heim en ég ætlaði mér nú samt að reyna að halda þessu eitthvað áfram. Í dag verða fréttirnar þó eingöngu á skeytaformi.


1. Ég er byrjuð að kenna og það gengur bara voða vel og mér finnst þetta alveg ofsalega skemmtilegt. Held ég taki mig bara ágætlega út í kennarastarfinu :-)


2. Við Mundi erum að fara að leigja í Mávahlíðinni. Flytjum annað hvort um helgina eða rétt eftir helgi.


3. Ég er komin með íslenskt gsm númer en er að sjálfsögðu búin að gleyma hvað það er, minnir samt að það hafi verið 869 2501. Þið getið alla vega prufað það og gáð hvort ég svari :-)


Sem sagt ekkert nema góðar fréttir og ekki yfir neinu að kvarta og ekkert að röfla um. Held það sé því bara best ég fari að hætta þessu og haldi áfram að undirbúa kennsluna, er með fjóra bekki á morgun.

-Svanhildur | 14:55 | Comments (6)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni