Laugardagur 14. janúar

Síðasta færsla héðan

þá er búið að bera allt niður og koma sumu fyrir í skottinu á bílnum. það sem eftir er fer inn í hann en það viljum við ekki skilja þar eftir fyrir allra augum yfir nótt og hlöðum því í bílinn rétt fyrir brottför. Bíllinn er ofhlaðinn dóti, en sem betur fer komum við næstumþví öllu fyrir í honum. Við ætlum að vakna kl 4 og reyna að vera lögð af stað um kl 5 í fyrramálið. áætlaður aksturstími er 15-18 tímar.


síðasta kvöldmáltíðin verður svo í boði þeirra rósdalshjóna hérna á efri hæðinni eftir klukkustund, en þau buðu okkur að koma til sín og borða því hér er allt orðið tómt.


við heyrumst svo aftur - bara aðeins norðar.

- mundi | 17:01
Umræður

Eva:

Góða ferð - við sjáum svo á Íslandinu góða.. hér allt á kafi í snjó svo þið ættuð að komast á skíði í Hlíðarfjalli!

(15.01.06 00:04)

Ziggy Flotti:

Góða ferð!

(15.01.06 13:18)

Erla:

Góða ferð:) Leiðinlegt að geta þó ekki hitt ykkur þegar ég og Fríða komum til Grenoble núna í byrjun feb. Takk samt fyrir hjálpina að útvega okkur herbergið. Hver veit nema við hittumst einhvern tíman á Fróninu;)

(15.01.06 17:22)

sara:

góða ferð! keyrið varlega. sjáumst vonandi hérna í DK.
knúsar

(15.01.06 19:27)

sara:

til hamingju með afmælið á morgun Svanhildur, veit því miður ekki í hvaða síma er hægt að ná í þig. vona að þú hafir það sem allra best á afmælisdeginum þínum. knúsar og kossar

(15.01.06 19:29)

Asdis:

Miss you already! Thad var aedi ad fara ut ad borda svona sidasta skiptid i bili... Vonandi gengur heimferdin afallalaust fyrir sig!

(16.01.06 10:10)

Magga:

Til hamingju með afmælið í dag elsku Svanhildur:)...vonandi gekk ferðin til norðurs vel..sjáumst svo von bráðar.

kv
Magga

(17.01.06 13:25)

svanhildur:

Takk kærlega fyrir afmæliskveðjurnar.
Ferðin til Danmerkur gekk bara vel: við vorum 16 tíma á leiðinni. Svo er búið að gera við bílinn svo að framhaldið lítur bara vel út.

(17.01.06 16:00)

Hildur:

Hæ hæ Svanhildur mín :) Er búin að reyna að hringja í númerin ykkar en lendi bara í því að óska öðrum Íslendingum til hamingju.. sem er svosem bara fínt fyrir utan það að þau eiga ekki afmæli í dag. . Segi því til hamingju elsku vinkona með daginn og takk fyrir 26 ára samveru (ohoj hvað þetta líður hratt..) - Hafðu það gott í dag! Spilda

(17.01.06 17:29)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni