Föstudagur 13. janúar

Lítið uppgjör

það er farið að vera tómlegt hérna í litla klefanum okkar í Grenoble. Mikið af dótinu okkar er farið niður í bílskúr, tilbúið fyrir brottför. hér eru eftir nokkrir leppar, bækur og eldhúsáhöld sem fara niður í dag og á morgun.


ef að einhver hefði sagt mér eftir fyrsta veturinn hérna að mér mundi finnast svolítið leiðinlegt að pakka niður og fara þá hefði ég nú hlegið. fyrsti veturinn minn hérna var mér hreint ekki auðveldur, mállaus, atvinnulaus og fattaði ekki hvernig í ósköpunum þetta virkaði allt hérna. því þjóðfélagið er sannarlega ólíkt og maður þarf að venja sig við ýmislegt sem maður ætti kannski ekki að þurfa að venja sig við, samanber það að horfa á fólk keyra á bílinn sinn hægri vinstri hérna út um gluggann við það eitt að leggja í stæði.


ekki tók nú betra við þegar ég fann svo vinnu, fyrsti vinnudagurinn hér var þrettándinn fyrir 2 árum, þá mætti ég með innigallann, en var sendur að mála úti á stuttermabol og inniskóm úti í 6 stiga frosti. ég fann fyrir tánum á mér aftur 2 dögum seinna!!! og svo eins og færsla frá 6. febrúar 2004 gefur til kynna þá átti það nú ekki eftir að batna. úr þeirri vinnu fór ég í aðra sem mér hugnaðist heldur ekki, var hreinlega óboðleg.


en smám saman hefur mér tekist að læra tungumál innfæddra, kannski ekki orðinn heimsmeistari, en er í það minnsta sjaldan úti á túni í samræðum. og smám saman fór maður einhvernvegin að aðlagast því að búa hér, hætti að taka umferðarreglur of hátíðlega og hika við að keyra aðeins á bílana fyrir framan og aftan þegar maður lagði í stæði. kynntist fólki sem hefur reynst vel og svo framvegis. þannig að hagurinn hefur vænkast í rólegheitum, þrátt fyrir að vinna hafi nú ekki verið upp á borðinu alla daga vikunnar. við höfum líka haft tækifæri til að ferðast talsvert meðan á dvölinni stóð, enda einhvernveginn frekar stutt til í það minnsta margra átta héðan frá Grenoble. sennilega höfum við gert það vegna þess að hér höfum við, og þó sérstakleg ég, haft meiri frítíma en áður. stundum hefur nú verið aðeins of mikið af honum, því það er líka hægt merkilegt nokk. ég held hins vegar að maður hafi ekki verðlagt frítímann sinn rétt fram að þessu, og sennilega mun maður ekki gera það á næstunni neitt frekar.


það er svo ansi margt sem ég gæti skrifað hér, ef ég ætlaði mér að gera einhverskona fullkominn annál um þann tíma sem við höfum búið í Frakklandi, en ég held að ég stoppi nú hérna. hér hefur maður lært margt - og ég vona að maður hafi lært eitthvað af því líka.


mig hlakkar sannarlega til að koma heim - en get ekki neitað því að það er jafn erfitt að fara og það verður gaman að koma.


- mundi | 08:08
Umræður

Torfi:

Já - þetta er sérstök tilfinning. Þessi tilfinning að skilja við einhvern stað sem maður er farinn að þekkja vel og hugsa sér að maður muni líklega aldrei koma þangað aftur nema sem gestur í stuttan tíma í senn. Þetta er alveg óháð aðstæðum á þeim stað sem kvaddur er.

... en það verður gott að koma heim - því eins og kellingin sagði um árið - heima er best.

(13.01.06 08:56)

sara:

eg get rett imyndad mer hversu erfitt thad er ad fara fra grenoble. thid erud buin ad vera tharna lengi og svo er lika svo fallegt tharna.. af myndunum ad dæma allavega. væri sko alveg til i ad thad væri td. svona skidafæri her i nand, en til thess tharf fjoll! hlakka til ad hitta ykkur, vona ad thid sjaid ykkur fært ad heimsækja namskonuna mig i alaborg a leid ykkar heim til islands.
her er skyjad, hiti 2 stig, engin snjor, thurrt ad kalla, mjog hægur vindur.
kossar og knus, gangu ykkur vel ad undirbua heimfor.

(13.01.06 09:19)

Malla:

Já,"skemmtileg" lesning,þessi lýsing á vinnudegi :) Kúka á veggfóður á gólfinu, það þarf alveg hugmyndaflug í það finnst mér :-) Góða ferð heim

(13.01.06 10:33)

Ziggy Flotti:

Jamm maður kannast við þessa tilfinningu. Þetta er alltaf blendið, mann hlakkar til að koma heim og hitt fólk en svo þegar maður er kominn heim þá er svo mikið annríki hjá öllum að maður hittir aldrei neinn. Svo þegar árin líða hérna heima fer maður að sakna gamla staðarins og spá í hvað maður er að gera á þessu umhleypinga skeri þar sem hvorki er vetur né sumar!!! En þetta hefur allt sína kosti og galla, málið er bara að eiga kaldan Carls og þá skiptir engu hvar þú ert :-)

(13.01.06 14:26)

hanna:

Já ég skal alveg trúa því að það sé blendnar tilfinningar hjá ykkur skötuhjúum núna..
Annars ætla ég að láta ykkur vita með mjög svo löngum fyrirvara.. að ykkur er boðið í útskriftarveisluna mína (loksins) núna 17.JÚNÍ nk! Vonandi verðiði á landinu og sjáið ykkur fært að mæta, því það væri alveg rosalega gaman að fá ykkur!! Svo er þetta líka kveðjuveisla.. því við Þorsteinn ætlum líka að leggja land undir fót og skella okkur til Kanalandsins mikla... spennandi það! ;)

(14.01.06 01:09)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni