Fimmtudagur 26. janúarlangt ferðalagþá erum við komin á klakann. eftir góða dvöl hjá mömmu og pabba í danmörku. þar var ýmislegt brallað sem ekki verður svosem tíundað nákvæmlega hér en okkur langar þó að þakka þeim jóa og fjólu, bjarna og bryndísi sérstaklega vel fyrir tölvu og bílviðgerðir, síðast en ekki síst þeim billundhjónum fyrir steikurnar allar, med mere. tusind tak allesammen. veðurofsi í danmörku gerði leiðina að norrænu ögn torfarnari en ella. við ætluðum að stoppa svolítið í álaborg hjá henni söru, sem við og gerðum en það stopp varð nú snubbóttara en við ætluðum, þar sem snjókoma fældi okkur áfram, við vorum smeyk um að verða ansi lengi á sumardekkjunum keðjuðum til hanstholm þaðan. en ferðin þangað tókst og þar beið okkar svo biluð ferja. okkur var hleypt um borð síðla kvölds og gefið að borða. seinna sama kvöld var tilkynnt að bilunin í ferjunni væri alvarleg og ekki væri hægt að gera við án aðstoðar þýskra sérfræðinga sem væntanlegir væru í fyrramálið. þannig að við gistum eina auka nótt við bryggju. daginn eftir var svo siglt, sólarhring á eftir áætlun. við fengum svo brælu hálfa leiðina og blíðu hinn helminginn. ég verð að hrósa þeim hjá smyrli fyrir fagmannlega meðhöndlun á svona tilfelli. þeir hugsuðu vel um farþegana og við fengum nóg að bíta og brenna okkur að kostaðarlausu mest alla ferðina fyrir vikið, og gátum gist á seyðisfirði út í þeirra reikning líka ef við vildum þar sem ferjan kom þangað að kvöldi.
við náðum nú ekki að sjá framan í marga í þessu stutta stoppi á norðurlandinu, en það var fyrirfram ákveðið að ruslast alla leið sem fyrst, enda bíllinn ekki í því formi að mann langaði að keyra meira um á honum en nauðsyn krafði og tíminn ögn takmarkaður þar sem svanhildur byrjar starfsnám á morgun. hitt er hins vegar ákveðið að norðurland verður vísiteraðað innan tíðar og þá vonumst við til að sjá ykkur sem þar búið sem flest.
- mundi | 13:05
Umræður
Guðni: Velkomin heim. Það er gott að heyra að allt gekk vel og þið séuð komin á leiðarenda, í bili að minnsta kosti. Gangi ykkur vel og við heyrumst og sjáumst síðar. Kveðja frá Grenoble (26.01.06 13:42)
Guðlaug: Velkomin heim bæði tvö heyrumst og sjaumst síðar kveðja frá Sigló Lauga (26.01.06 15:42)
Baldur Helgi: Veriði velkomin heim, ég verð að fá uppgjör á Frakklandsdvöl við fyrsta tækifæri... (27.01.06 11:56)
Dagný og co: Velkomin heim! Vonandi fær maður að sjá framan í ykkur bráðlega, það er jólapakki sem bíður ykkar hérna uppi á hillu - lengi von á einum - svo endilega droppið inn við tækifæri. (27.01.06 22:18)
Jón Gunnar: Sammála elsta bróður. Vil fá skýrslu sem skolað verður niður með nokkurum ísköldum! ( Mér er samt eiginlega alveg sama um skýrsluhelvítið) Látiði heyra í ykkur við tækifæri og þegar þið hafið tíma. /Jón (28.01.06 01:56)
bogga frænka :D: hæ hæ elsku frændi og velkominn heim :* vonandi komið þið við tækifæri á sigló og þú getur þá kannski tekið eitt eða tvö handahlaup fyrir mig á drottningarbrautinni ;) bara svona til þess að minnast gamalla tíma ;) hehe... en hlakka til að sjá ykkur ... (31.01.06 16:19)
sara: hæ og velkomin til íslands. það var nú ósköp gaman að fá ykkur í heimsókn þó stutt væri. svona getur veðrið verið á stundum, jafnvel í DK. hlakka til að hitta ykkur í sumar.. eða um páskana jafnvel :) (01.02.06 13:39)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Yfir móðuna miklu
Síða í dauðateygjunum? Jólaútilegan 2007 Gleðileg Jól Að eiga erindi Fyrir utan Hamrahlíðina í dag... Nú bar vel í veiði Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|