Laugardagur 14. janúar

dernier jour a Grenoble

þá er hann runninn upp síðasti dagur búsetu okkar hér í Grenoble.


í gærkvöldi fórum við meðlimir GRíS (GRenoble-ÍSland) út að borða á vömbina. það var ákaflega gott og okkur vel tekið að vanda. þar með kvöddum við ásdísi og guðna í bili en eirkík og helgu vonumst við nú til að sjá fyrr heima á íslandi.


en nú er bara að klára að pakka og ganga frá og þrífa. við ætlum að fara niður á eftir og prófa að raða aðeins í bílinn til að átta okkur á því hvar við stöndum plásslega séð. ég hef nefnilega skipt um skoðun á því svona tvisvar á dag undanfarið hvort ég held að allt komist með eða hvort að það verður eitthvað að skilja eftir eða senda.


það ætti að koma í ljós á eftir - ég er svakaspenntur!

- mundi | 11:18
Umræður

bogga frænka :D:

hæ elsku fændi minn... nuna er bara komið að því að þið komið aftur hingað á klakann til okkar :D ég hlakka mjög til að sjá ykkur og ég vona að þið verðið dugleg að heimsækja okkur ömmu :D En það var nu samt eitt sem ég vildi biðja þig sérstaklega um að muna eftir.... Mugison diskurinn sem hún yndislega móðir mín lét þig fá í misgripum, viltu muna eftir honum :$ ég sakna hans alveg svakalega mikið (cry) en ég hlakka til að sjá ykkur .... Kysstu nu svanhildi frá mér ... :*:*

(14.01.06 15:56)

Ziggy Flotti:

Þetta er allt spurning um að þrýsta bara nóg á dótið þá fer það inn að endingu :-)

(14.01.06 16:01)

sara:

já og um að gera að hafa líka vonina með sér, hún hjálpar oft til á ögurstundum.
knúsar og kossar.. gangi ykkur vel

(14.01.06 16:45)

mundi:

Bogga: mugison er á vísum stað og á leið til þín

Ziggy: trúðu mér það er búið að því - við hlið tengdamömmuboxins eru svo 2 skíðapokar fullir af skíðum og fötum, strappaðir ofan á toppinn... ...það er semsagt búið að finna út hvað kemst mikið í og með volvo 460 - akkúrat SVONA mikið.

(14.01.06 16:48)

Hildur:

Vahá, ég treysti ykkur sko alveg til að raða vel í þennan bíl- hef aldrei séð aðra eins skipulagningu og fyrir útileguferðirnar í sumar! þið eruð farin að þekkja bílinn svo vel að ef ykkur leiðist hérna á Íslandi getiði alltaf dundað ykkur við að skrifa minningarbók um volvo 460 þegar hann andast :) Segi annars góða ferð og hlakka til að sjá ykkur heima.

(14.01.06 18:00)

Torfi:

ferðina

(16.01.06 08:21)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni