Fimmtudagur 5. janúar

augnháralengingar

... það virðist vera málið í dag. eins og svo oft áður þá horfðum við á netsjónvörpun ríkisins í gær. í kastljósþættinum var viðtal við snyrtifræðing sem var búin að nema augnháralengingar einhversstaðar og var farin að stunda þá iðju á íslenskum kvenkosti. gott og vel. ekki ætla ég nú svosem að gagnrýna það, ef að fólki líður betur með löng gerviaunhár þá er það bara allt í lagi mín vegna. en það sem mér fannst athyglisvert var hvernig hún auglýsti þessa aðgerð. "Að þetta væri bara hluti af daglegu lífi kvenna erlendis og konur þar færu bara á nokkurra vikna fresti til að fá sér örfá ný augnhár" - "þá þyrftu þær minni tíma til að hafa sig til og værið það jú ekki af hinu góða að geta eytt tíma sínum í annað og láta sér líða betur og bla bla bla eitthvað"


það má vel vera að þetta sé svona gott - ég ætti kannski ekki að vera að skíta þetta út þar sem ég hef aldreiverið með gerviaugnhár. en þar sem ég hef verið um ævina þá held ég að hvergi sé lagt jafn mikið upp úr fötunum og útlitinu og einmitt á íslandi. enda fannst mér það skemmtilegt að sjá það nýjasta frá útlöndum einmitt í hinu alíslenska kastljósi. hér á okkar svæði, er fólk yfirleitt eins og það sé nývaknað og í þeim fötum sem höndin fann í skápnum með annað augað lokað þann morguninn.


látum ekki plata okkur - drekkum malt - það bætir meltinguna og gefur hraustlegt og frísklegt útlit


grenoble over and out

- mundi | 14:39
Umræður

sara:

já veistu Mundi, ég er bara nokkuð sammála þér með þetta allt saman. útlitsdýrkunin.. og að mér finnst vitleysis og yfirborðshyggjan á það til að taka yfirhöndina hjá fólki.

blessaður

(05.01.06 18:30)

fanney:

hvaða hvaða, nokkur augnhár til og frá... hvað er það á milli vin.. kvenna hehe.

en þú hefðir nú bara átt að vera í steikinni maður mmmm vá ...

(05.01.06 21:38)

Torfi:

... Maltið gefur hraustlegt og gott útlit og Opal bætir hressir og kætir.

Meira þarf ekki!

(06.01.06 09:46)

Malla:

Og eitt epli á dag kemur skapinu í lag :-)

(06.01.06 14:36)

Ziggy Flotti:

Eða ein flaska af rauðu!! :-)

(06.01.06 16:27)

Jón Gunnar:

Ziggy danska fyllibytta. Ég öfunda þig!

(07.01.06 00:01)

Bjössi:

Tarantino var nú ekki hrifinn af opalinu....

(08.01.06 13:07)

mundi:

hahahaha... nei aldeilis ekki. ég var einmitt að sjá viðtalið umtalaða.

(08.01.06 13:43)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni