Sunnudagur 8. janúar

það er Gervihnattaöld

og þá líður tíminn hratt. í endaðan maí 2003 slitum við okkur af stað til danaveldis til að búa í nokkra mánuði og þá um haustið fórum við lengra, hingað til Grenoble með dyggri aðstoð Volfgangs.


síðan eru liðnir margir dagar og nú sér fyrir endann á fastri búsetu á meginlandinu. okkur telst svo til að það sé slétt vika eftir hérna í Grenoble og tæplega ein til í danaveldi. stefnan er tekin á það að aka af stað með pompi og pragt, hávaða og látum á sunnudagsmorguninn að viku liðinni. hávaða og látum segi ég því aumingja Volfgang er með afgasrörið götótt og gefur frá sér mikil óhljóð þegar honum er ekið. franski bifvélavirkinn minn ætlaði að laga þetta fyrir mig en okkur blöskraði svo verðið á varahlutunum að við ákváðum báðir að halda að okkur höndum. Volvo umboðið í grenoble vildi nefnilega fá um 1300 € fyrir pústpartinn og svo ætlaði umræddur maður að taka 100 slíkar til viðbótar fyrir skiptin. þetta er auðvitað alveg út í hött. því verður hækkað vel í útvarpinu fyrstu 1500 kílómetra ferðalagsins.


en flýgur fiskisagan og þeir kerrusmiðirnir félagar mínir á norðurlandinu fóru strax í startholur, reiðubúnir að taka á móti okkur með rafsuðuvír og tilbehörende. svo fréttist líka af þessu vandamáli á jótlandi og þar eru einnig góðir menn sem vilja Volfgang vel svo að það er bara spurning núna hvar á ferðalaginu langa þetta vandamál verður leyst.


annað helstra frétta héðan er svo að gamla tölvan okkar gafst upp á þeirri mögnuðu misnotkun sem hún hefur orðið fyrir á sinni ævi. harði diskurinn hennar brann bara yfir í nótt meðan við sváfum. það var nú smá fyrirvari á þessu og því vorum við búin að aftita öll gögn sem máli skiptu, og þar með lágmarka skaðann. þetta mál verður svo leyst með því að heimsækja Jóa þegar til danmerkur verður komið. það gæti því farið svo að þessir dagar sem við munum eiga í danmörku verði svona eins og viðgerðahlé í formúlunni!!

það verður semsagt í ýmsu að snúast þessa síðustu daga okkar á meginlandinu

- mundi | 14:18
Umræður

Torfi:

Allt að gerast í ölpunum greinilega...

... hávaði í bifreiðum er gróflega vanmetinn - fólk víkur miklu betur ef það heyrist eitthvað í þessu dóti :-)

(09.01.06 09:11)

sara:

einmitt sammála Torfa. það gæti reynst ykkur vel. félagsfræðin segir að því stærri og hávaðameiri sem maður er, því meira forðast fólk mann. litlir og háværir eins og ég fá svona ögn geðklofalegri athygli. þessi læti í bílnum gætu auðveldað ykkur ferðina, því kannski halda allir að það sér stór flutningabíll á ferðinni, og víkja bara alltaf fyrir ykkur. var annars að horfa á Finding Neverland. mikið er það góð og falleg mynd. algjört yndi. maður gat alveg grátið og hlegið og allt með bara.

en annars, gangi ykkur vel svona síðustu vikuna í Grenoble. og góða ferð til Baunalands. þið mættuð nú endilega koma við á leið ykkar í Norrænu. ég er nú alveg í leiðinni! meira að segja þurfið þið að keyra í gegnum álaborg á leiðinni í Norrænu.
knúsar

(09.01.06 16:24)

svanhildur:

Við keyrum reyndar ekki í gegnum Áaborg en það er ekki mikill útúrdúr að stoppa þar á leiðinni til Hanstholm. Aldrei að vita nema við kíkjum í kaffi, það væri nú alveg ofsalega gaman.
Verðum í bandi með þetta.

(09.01.06 17:31)

Jón Gunnar:

Komiði fagnandi!

(09.01.06 20:00)

sara:

frábært!

(10.01.06 08:34)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni