janúar 26, 2006

langt ferðalag

þá erum við komin á klakann. eftir góða dvöl hjá mömmu og pabba í danmörku. þar var ýmislegt brallað sem ekki verður svosem tíundað nákvæmlega hér en okkur langar þó að þakka þeim jóa og fjólu, bjarna og bryndísi sérstaklega vel fyrir tölvu og bílviðgerðir, síðast en ekki síst þeim billundhjónum fyrir steikurnar allar, med mere. tusind tak allesammen.

veðurofsi í danmörku gerði leiðina að norrænu ögn torfarnari en ella. við ætluðum að stoppa svolítið í álaborg hjá henni söru, sem við og gerðum en það stopp varð nú snubbóttara en við ætluðum, þar sem snjókoma fældi okkur áfram, við vorum smeyk um að verða ansi lengi á sumardekkjunum keðjuðum til hanstholm þaðan. en ferðin þangað tókst og þar beið okkar svo biluð ferja. okkur var hleypt um borð síðla kvölds og gefið að borða. seinna sama kvöld var tilkynnt að bilunin í ferjunni væri alvarleg og ekki væri hægt að gera við án aðstoðar þýskra sérfræðinga sem væntanlegir væru í fyrramálið. þannig að við gistum eina auka nótt við bryggju. daginn eftir var svo siglt, sólarhring á eftir áætlun. við fengum svo brælu hálfa leiðina og blíðu hinn helminginn. ég verð að hrósa þeim hjá smyrli fyrir fagmannlega meðhöndlun á svona tilfelli. þeir hugsuðu vel um farþegana og við fengum nóg að bíta og brenna okkur að kostaðarlausu mest alla ferðina fyrir vikið, og gátum gist á seyðisfirði út í þeirra reikning líka ef við vildum þar sem ferjan kom þangað að kvöldi.


við ákváðum samt að halda strax af stað til akureyrar þá um kvöldið eftir að tollararnir á seyðis voru búnir að tefja okkur leiðinlega lengi við einhverja tilgangslausa bjúrókratíu. meiri fasisminn það. nú erum við búin að vera með þetta dót okkar út um allt á ferðalögum fram og til baka, innan EU og utan og án allra vandamála, en nei þegar hingað er komið vantar þá að vita alla mögulega og ómögulega hluti um okkar hagi. meira ruglið. en áfallalaust svosem.


ferðin til akureyrar sóttist svo fremur hægt á margumræddum sumardekkjum, en þangað vorum við komin um kl hálffjögur um nótt og fengum inni fyrir okkur og volfgang á galtalæk. í gær var svo nöglunum skellt undir og haldið áfram og við vorum komin í borgina um kvöldmat.

við náðum nú ekki að sjá framan í marga í þessu stutta stoppi á norðurlandinu, en það var fyrirfram ákveðið að ruslast alla leið sem fyrst, enda bíllinn ekki í því formi að mann langaði að keyra meira um á honum en nauðsyn krafði og tíminn ögn takmarkaður þar sem svanhildur byrjar starfsnám á morgun. hitt er hins vegar ákveðið að norðurland verður vísiteraðað innan tíðar og þá vonumst við til að sjá ykkur sem þar búið sem flest.


jæja þetta er orðið allt of langt, þakkir til allra sem réttu hjálparhönd á leiðinni , og annað hitt að fréttaflutningur af okkur verður trúlega eitthvað stopull hér næsta hálfa mánuðinn í það minnsta, en koma tímar koma ráð.


bless í bili

-mundi | 13:05 | Comments (7)

janúar 17, 2006

bestu kveðjur

já - við komum hingað á sunnudagskvöld eftir að hafa brennt um 170 lítrum af bensíni. volfgang var ansi þyrstur, enda hafði hann þungt hlass að bera eins og áður hefur komið fram. hann stóð sig samt eins og hetja og fékk strax á mánudag umönnun hjá bjarna. nú malar hann eins og kettlingur án meltingatruflanna. mig langar að þakka bjarna kærlega fyrir alla hjálpina.


annað er ekki stórra tíðinda héðan, við vorum að snæða ágæta afmælismáltíð svanhildi til heiðurs enda á hún afmæli í dag. en við fluttum hingað með okkur kornhænur og fois gras. glimrandi. hildur á líka afmæli og sendum við henni okkar bestu afmæliskveður líka.


ps. ef einhver þarf að ná í okkur, þá er símanúmer í foreldrahúsum 0045 7535 4646

-mundi | 21:02 | Comments (10)

janúar 14, 2006

Síðasta færsla héðan

þá er búið að bera allt niður og koma sumu fyrir í skottinu á bílnum. það sem eftir er fer inn í hann en það viljum við ekki skilja þar eftir fyrir allra augum yfir nótt og hlöðum því í bílinn rétt fyrir brottför. Bíllinn er ofhlaðinn dóti, en sem betur fer komum við næstumþví öllu fyrir í honum. Við ætlum að vakna kl 4 og reyna að vera lögð af stað um kl 5 í fyrramálið. áætlaður aksturstími er 15-18 tímar.


síðasta kvöldmáltíðin verður svo í boði þeirra rósdalshjóna hérna á efri hæðinni eftir klukkustund, en þau buðu okkur að koma til sín og borða því hér er allt orðið tómt.


við heyrumst svo aftur - bara aðeins norðar.

-mundi | 17:01 | Comments (9)

dernier jour a Grenoble

þá er hann runninn upp síðasti dagur búsetu okkar hér í Grenoble.


í gærkvöldi fórum við meðlimir GRíS (GRenoble-ÍSland) út að borða á vömbina. það var ákaflega gott og okkur vel tekið að vanda. þar með kvöddum við ásdísi og guðna í bili en eirkík og helgu vonumst við nú til að sjá fyrr heima á íslandi.


en nú er bara að klára að pakka og ganga frá og þrífa. við ætlum að fara niður á eftir og prófa að raða aðeins í bílinn til að átta okkur á því hvar við stöndum plásslega séð. ég hef nefnilega skipt um skoðun á því svona tvisvar á dag undanfarið hvort ég held að allt komist með eða hvort að það verður eitthvað að skilja eftir eða senda.


það ætti að koma í ljós á eftir - ég er svakaspenntur!

-mundi | 11:18 | Comments (6)

janúar 13, 2006

Lítið uppgjör

það er farið að vera tómlegt hérna í litla klefanum okkar í Grenoble. Mikið af dótinu okkar er farið niður í bílskúr, tilbúið fyrir brottför. hér eru eftir nokkrir leppar, bækur og eldhúsáhöld sem fara niður í dag og á morgun.


ef að einhver hefði sagt mér eftir fyrsta veturinn hérna að mér mundi finnast svolítið leiðinlegt að pakka niður og fara þá hefði ég nú hlegið. fyrsti veturinn minn hérna var mér hreint ekki auðveldur, mállaus, atvinnulaus og fattaði ekki hvernig í ósköpunum þetta virkaði allt hérna. því þjóðfélagið er sannarlega ólíkt og maður þarf að venja sig við ýmislegt sem maður ætti kannski ekki að þurfa að venja sig við, samanber það að horfa á fólk keyra á bílinn sinn hægri vinstri hérna út um gluggann við það eitt að leggja í stæði.


ekki tók nú betra við þegar ég fann svo vinnu, fyrsti vinnudagurinn hér var þrettándinn fyrir 2 árum, þá mætti ég með innigallann, en var sendur að mála úti á stuttermabol og inniskóm úti í 6 stiga frosti. ég fann fyrir tánum á mér aftur 2 dögum seinna!!! og svo eins og færsla frá 6. febrúar 2004 gefur til kynna þá átti það nú ekki eftir að batna. úr þeirri vinnu fór ég í aðra sem mér hugnaðist heldur ekki, var hreinlega óboðleg.


en smám saman hefur mér tekist að læra tungumál innfæddra, kannski ekki orðinn heimsmeistari, en er í það minnsta sjaldan úti á túni í samræðum. og smám saman fór maður einhvernvegin að aðlagast því að búa hér, hætti að taka umferðarreglur of hátíðlega og hika við að keyra aðeins á bílana fyrir framan og aftan þegar maður lagði í stæði. kynntist fólki sem hefur reynst vel og svo framvegis. þannig að hagurinn hefur vænkast í rólegheitum, þrátt fyrir að vinna hafi nú ekki verið upp á borðinu alla daga vikunnar. við höfum líka haft tækifæri til að ferðast talsvert meðan á dvölinni stóð, enda einhvernveginn frekar stutt til í það minnsta margra átta héðan frá Grenoble. sennilega höfum við gert það vegna þess að hér höfum við, og þó sérstakleg ég, haft meiri frítíma en áður. stundum hefur nú verið aðeins of mikið af honum, því það er líka hægt merkilegt nokk. ég held hins vegar að maður hafi ekki verðlagt frítímann sinn rétt fram að þessu, og sennilega mun maður ekki gera það á næstunni neitt frekar.


það er svo ansi margt sem ég gæti skrifað hér, ef ég ætlaði mér að gera einhverskona fullkominn annál um þann tíma sem við höfum búið í Frakklandi, en ég held að ég stoppi nú hérna. hér hefur maður lært margt - og ég vona að maður hafi lært eitthvað af því líka.


mig hlakkar sannarlega til að koma heim - en get ekki neitað því að það er jafn erfitt að fara og það verður gaman að koma.


-mundi | 08:08 | Comments (5)

janúar 12, 2006

nú er það að verða stutt í annan endann

þannig er það nú bara.


en sólin skein á ný í gær og skömmu eftir að ég birti síðustu færslu ákvað ég að þetta skyldi ekki vera síðasti skíðadagurinn - og fór aftur í gær. það var sama bongóblíðan, bara ögn kaldara. en það er nú eflaust ágætt að fara að venja sig við það !!! :)


í dag hef ég engu komið í verk, ennþá - en það stendur til bóta, ég ætla mér að halda aðeins áfram með það að koma dóti í umbúiðir og niður stigann inn í bílskúr þeirra Rósdalshjóna. þau hjónin Rósdal lánuðu okkur nefnilega bílskúrinn sinn til að geyma dót í fram að brottför svo við þurfum ekki að bera allt niður aðfaranótt sunnudags. en bílskúrinn þeirra hefur mun færri mýs per fermeter en bílskúr Gonna sem er við hliðina á og við höfum einnig lyklavöld að. þau komu hérna í morgun og færðu okkur bók og fallegt bréf að skilnaði. kannski svolítið skondið og táknrænt að við gáfum þeim bók um íslenska náttúru fyrr í vetur, þau færðu okkur franska matreiðslubók í dag.


hvert land hefur sinn sjarma...

-mundi | 11:06 | Comments (0)

janúar 10, 2006

Chamrousse

tn_P1100012.JPG


össss....


þangað fór ég í dag með Eiríki og Helgu. Þessari smellti Eiríkur af rétt áður en við skelltum okkur niður í einhverjar kolómögulegar ógöngur. veðrið lék við okkur og skíðafærið alveg glimrandi þó í harðara lagi væri. sennilega var þetta mín síðasta skíðaferð í bili hér í frönsku ölpunum - en ég lofa þó engu ef að sólin lætur sjá sig aftur...

-mundi | 19:39 | Comments (5)

janúar 8, 2006

það er Gervihnattaöld

og þá líður tíminn hratt. í endaðan maí 2003 slitum við okkur af stað til danaveldis til að búa í nokkra mánuði og þá um haustið fórum við lengra, hingað til Grenoble með dyggri aðstoð Volfgangs.


síðan eru liðnir margir dagar og nú sér fyrir endann á fastri búsetu á meginlandinu. okkur telst svo til að það sé slétt vika eftir hérna í Grenoble og tæplega ein til í danaveldi. stefnan er tekin á það að aka af stað með pompi og pragt, hávaða og látum á sunnudagsmorguninn að viku liðinni. hávaða og látum segi ég því aumingja Volfgang er með afgasrörið götótt og gefur frá sér mikil óhljóð þegar honum er ekið. franski bifvélavirkinn minn ætlaði að laga þetta fyrir mig en okkur blöskraði svo verðið á varahlutunum að við ákváðum báðir að halda að okkur höndum. Volvo umboðið í grenoble vildi nefnilega fá um 1300 € fyrir pústpartinn og svo ætlaði umræddur maður að taka 100 slíkar til viðbótar fyrir skiptin. þetta er auðvitað alveg út í hött. því verður hækkað vel í útvarpinu fyrstu 1500 kílómetra ferðalagsins.


en flýgur fiskisagan og þeir kerrusmiðirnir félagar mínir á norðurlandinu fóru strax í startholur, reiðubúnir að taka á móti okkur með rafsuðuvír og tilbehörende. svo fréttist líka af þessu vandamáli á jótlandi og þar eru einnig góðir menn sem vilja Volfgang vel svo að það er bara spurning núna hvar á ferðalaginu langa þetta vandamál verður leyst.


annað helstra frétta héðan er svo að gamla tölvan okkar gafst upp á þeirri mögnuðu misnotkun sem hún hefur orðið fyrir á sinni ævi. harði diskurinn hennar brann bara yfir í nótt meðan við sváfum. það var nú smá fyrirvari á þessu og því vorum við búin að aftita öll gögn sem máli skiptu, og þar með lágmarka skaðann. þetta mál verður svo leyst með því að heimsækja Jóa þegar til danmerkur verður komið. það gæti því farið svo að þessir dagar sem við munum eiga í danmörku verði svona eins og viðgerðahlé í formúlunni!!

það verður semsagt í ýmsu að snúast þessa síðustu daga okkar á meginlandinu

-mundi | 14:18 | Comments (5)

janúar 5, 2006

augnháralengingar

... það virðist vera málið í dag. eins og svo oft áður þá horfðum við á netsjónvörpun ríkisins í gær. í kastljósþættinum var viðtal við snyrtifræðing sem var búin að nema augnháralengingar einhversstaðar og var farin að stunda þá iðju á íslenskum kvenkosti. gott og vel. ekki ætla ég nú svosem að gagnrýna það, ef að fólki líður betur með löng gerviaunhár þá er það bara allt í lagi mín vegna. en það sem mér fannst athyglisvert var hvernig hún auglýsti þessa aðgerð. "Að þetta væri bara hluti af daglegu lífi kvenna erlendis og konur þar færu bara á nokkurra vikna fresti til að fá sér örfá ný augnhár" - "þá þyrftu þær minni tíma til að hafa sig til og værið það jú ekki af hinu góða að geta eytt tíma sínum í annað og láta sér líða betur og bla bla bla eitthvað"


það má vel vera að þetta sé svona gott - ég ætti kannski ekki að vera að skíta þetta út þar sem ég hef aldreiverið með gerviaugnhár. en þar sem ég hef verið um ævina þá held ég að hvergi sé lagt jafn mikið upp úr fötunum og útlitinu og einmitt á íslandi. enda fannst mér það skemmtilegt að sjá það nýjasta frá útlöndum einmitt í hinu alíslenska kastljósi. hér á okkar svæði, er fólk yfirleitt eins og það sé nývaknað og í þeim fötum sem höndin fann í skápnum með annað augað lokað þann morguninn.


látum ekki plata okkur - drekkum malt - það bætir meltinguna og gefur hraustlegt og frísklegt útlit


grenoble over and out

-mundi | 14:39 | Comments (8)

janúar 3, 2006

Nýja árið

Hér var mikil gleði á gamlárskvöld. Við fengum fjóra góða íslenska gesti og byrjuðum kvöldið á að borða alveg yfir okkur af alveg frábærum mat, svo var tekinn einn Hróarskelduleikur og því næst var mikið hlegið yfir skaupinu. Svo var skálað í lúxuskampavíni á miðnætti og svo tekið til við dans og söng. Ég hef sjaldan vitað jafn vel heppnað partý, allir í svaka stuði og við dönsuðum og sungum alveg endalaust, eða þangað til að allir voru búnir á því og langt liðið undir morgun. Nýársdegi var svo eytt í leti við að horfa á fréttaannálana og bíómyndir og svo hófst læringur hjá mér á ný í gær. Nú er Mundi svo á skíðum með hinum Íslendingunum en ég ætla að reyna að láta mér verða eitthvð úr verki og reyna að rumpa eins og þremur verkefnum af.


Annars er tilfinning mín fyrir þessu nýja ári alveg svakalega góð. Er viss um að árið verður alveg frábært. Óska ykkur öllum gleðilegs árs.

-Svanhildur | 10:56 | Comments (5)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni