Fimmtudagur 22. desember

skýjum ofar

tn_skidi026.jpg

mig langar nú að byrja á því að þakka fyrir allar afmæliskveðjurnar sem mér bárust í fyrradag. takk.


í gær skelltum við okkur svo á skíði í les7laux. fengum skíðadag eins og þeir gerast bestir, en það vantar þó enn smá snjó. hér í grenoble var skýjað, en skýjum ofar var þessi líka bongó blíða. hann eiríkur tók af okkur þessa mynd og sendi.


við ætlum svo að gera jólainnkaupin núna, kaupa hátíðafæðið. önd verður það þetta árið.

- mundi | 10:13
Umræður

Ziggy Flotti:

Um að gera að éta þessar endur í sem mestu magni áður en þetta verður allt löðrandi í fuglaflensu!! Verði ykkur að öndinni, eðalfæði þar á ferð!!!

(22.12.05 15:07)

Signý frænka:

Hæ Svanhildur og Mundi.

Langaði bara að segja "Gleðileg jól" til ykkar þarna í France. Vona að þið hafið það sem allra allra best yfir hátíðarnar og ég hlakka til að sjá ykkur á nýju ári.

Skötuveislan verður hjá okkur í Leiðhömrum á morgun, við hugsum til ykkar þegar við úðum henni í okkur með tilheyrandi ilmi, hamsatólg o.fl. Ég reyndi nú að baka rúgbrauð til að hafa með henni, en það mislukkaðist eitthvað svo ég verð bara að kaupa það. Við gerðum 50 laufabrauðskökur um síðustu helgi, ég flatti allt út og var svo að drepast í harðsperrum í maganum næstu daga. Systurnar koma svo báðar heim í kvöld, önnur hefur verið að rómansera á Akureyri í heila viku, hin kemur frá Danmark. Það verður ekið í loftköstum á milli Reykjavíkuflugvallar og Keflavíkurflugvallar því stutt er á milli vélanna þeirra. En ekki meira í bili, ástarkveðjur til ykkar og gangi ykkur vel að halda jólin hátíðleg.

Kveðja,
Signý frænka.

(22.12.05 15:10)

svanhildur:

Við þökkum innilega fyrir jólakveðjuna. Verður gaman hjá ykkurí kvöld að fá skvísurnar heim.
Sendum ykkur okkar kærustu jólakveðjur (efast um að jólakortin komi fyrir jól).

(22.12.05 17:32)

Jón Gunnar:

Þetta er flott mynd.
Mundi skartar þarna svona þessum líka fína Heidda heilalausa-hljálmi. Kúl!

Gleðileg jól kæru vinir!

/Jón Gunnar

(22.12.05 23:46)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni