Þriðjudagur 20. desember

....

ég held að ég verði að fara að ná í skíðin mín. þau enduðu nefnilega á verkstæði eftir síðustu skíðaferð, fengu slatta af rispum. maður á víst ekki að skíða í grjóti. ætli ég geri það ekki að verkefni dagsins. það er nefnilega að koma skíðahugur í mig aftur. svo þyrfti ég að kíkja í bæinn líka. hér mega jólin nefnilega bara alveg fara að koma, það er næstumþví allt klárt!


í kvöld ætlum við svo að fara út að borða á uppáhaldsveitingastaðinn okkar hérna "la panse" sem þýðir hvorki meira né minna en "vömbin" á hinu ástkæra ylhýra. já sú verður kýld.


grenoble over

- mundi | 09:45
Umræður

Teddi:

Já, þú manst betur en ég! Og ég sem hef alltaf stært mig af því að vita afmælisdaga hjá öllum.
Til lukku Mundi minn
Theodór Ingi

(20.12.05 10:32)

Björk:

Til Hamingju með daginn Mundi minn !!
Ég kem aldrei til með að gleyma afmælisdeginum þínum þar sem að Óli minn fæddist akkúrat fyrir ári síðan.
Hafðu það ofsalega gott...
kveðja frá Akureyris

(20.12.05 14:38)

Guðlaug:

til hamingju með daginn gamli minn
Kveðjur frá Sigló og ömmu Boggu

(20.12.05 15:35)

Torfi:

Til lukku með daginn....


.... 31 stig

(20.12.05 16:05)

Jón Gunnar:

Innilega til hamingju með daginn elsku kjellinn minn. Ég skála fyrir þér í frönsku rauðvíni í kvöld. Njóttu þess að belgja út vömbina á Vömbinni.

Þinn vinur,

Jón Gunnar Benjamínsson

(20.12.05 16:39)

Baldur Helgi:

Til lukku með afmælið höfðingi!

Mér finnst alveg sérstaklega vel til fundið að fara á "Vömbina" á degi sem þessum. Það verður skálað fyrir þér um allt land í kveld. Það biðja allir á Ytri-Tjörnum að heilsa.

Kær kveðja, Baldur Helgi.

(20.12.05 17:40)

Ziggy Flotti:

Til lukku gamli, velkominn í hópinn þrjátíu og.....!

(20.12.05 18:24)

sara:

til hamingju með daginn Mundi. vona að þú eigir rosalega góðan dag! kossar og knúsar frá henni Söru

(20.12.05 18:29)

Hildur:

Til hamingju með afmælið elsku vinur, vona að Vömbin hafi verið góð :) Ánægð með ykkur að skera laufabrauð, standið ykkur vel!

(20.12.05 23:40)

male enhancements:

male enhancements - http://male-----enhancement.blogspot.com/

(19.02.07 09:21)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni