Fimmtudagur 29. desember

milli jóla og nýárs

hérna hjá okkur hafa jólin verið róleg og góð. jóladag og annan var púls vart mælanlegur, þriðja dag jóla fór hann að finnast aftur. en alveg eins og við hefðum haldið jólin heima þá hefur ekki verið skortur á einhverju að bíta og brenna. það er margt sem búið er að framreiða hérna undanfarna daga, þar á meðal hörpuskel, andakjöt og lifrar, kornhænur, hráskinku og melónur og svo videre. millitíminn á konfektkassanum var einnig með besta móti þetta árið.


hér snjóar í dag, - ekki er það nú mikið, en allur snjór er vel þeginn. bíðum bara eftir uppstyttu.

- mundi | 13:02
Umræður

Ziggy Flotti:

Þessi listi hljómar bara alls ekki svo illa. Þið hafið munað eftir að skokka 2km á dag til að vega upp á móti auka átinu er það ekki :-)

(29.12.05 13:25)

baddy:

Gleðileg jól, það er greinilegt að þið hafið það mjög gott þarna, rjúpurnar smökkuðust dásamlega:)

en ég var að spögulera í einu, er það rétt að þið eruð búin að fá ykkur nýja fartölvu?? ekki vill svo til að þið ætlið ykkur að losna við hleðslutækið af þeirri gömlu?? ef svo er þá megiði alveg hafa samband við mig, tölvan mín er fín nema hleðslutækið klikkaði!!:S

en hafið það gott og vonandi verðum við vör við það þegar þið komið til landsins;)
kveðja úr ásveginum:)

(29.12.05 14:29)

Jón Gunnar:

Namm, andakjöt. Faðir, ég hef syndgað! Ég fór og skaut og drap 2 Stokkendur á Jóladag. Fékk eitthvað fuss og svei frá einhverjum kellingum í ættinni þegar ég fór að segja frá þessu í jólaboðinu daginn eftir. Hey, haldiði ekki að þeim hafi verið slétt sama hvaða dagur var þegar þær lentu í haglélinu? Þarna sátu þær á skurðinum heima og ég bara varð að ná tveimur í viðbót fyrir áramóta dinerinn sem ég ber ábyrgð á og þá greip ég bara gæsina(í þessu tilfelli öndina) þegar hún gafst?

20 Maríubænir og fimm Faðirvor...Amen!

(29.12.05 16:56)

mundi:

Ziggy: þú getur bara sjálfur verið feitur !!! ;-)


Baddý: sú gamla er enn í fullri notkun, en á það til að slökkva á sér upp úr þurru öðru hverju, við höldum að það sé kannski spennubreytinum að kenna. Hvernig lýsir það sér hjá þér??


og Jón: endur eru bara eitt það besta, og ekki veljum við hinsta dag frekar en þessar 2 endur. Gangi þér vel með maríubænirnar. Bon Appétit

(29.12.05 18:32)

baddy:

hleðslutækið bara dó! engin viðvörun eða neitt bara drapst! ég fékk eitthvað nýtt sem er samt ekki alveg nógu gott því það er held ég að fara illa með batteríið, allavegana versnaði það til muna þegar ég skipti um hleðslutæki!

(30.12.05 01:25)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni