Mánudagur 19. desember

Laufabrauð.

var verkefni laugardagsins. fyrir þónokkru síðan ákváðum við að steikja laufabrauð fyrir jólin. en þannig er nú mál með vexti að ýmislegt sem þarf til þeirrar gerðar er vandfundið hér í frans. við töluðum því við billundhjónin og fengum sent frá þeim uppskrift og allt sem þurfti ásamt járni til útskurðar. Snæbjörn gaf okkur svo uppskrift af rúgmjölskökum.


svo boðuðum við íslendingana á svæðið og á laugardaginn komu þeir hingað með mótpörtum og við gerðum einar 4 tegundir af laufabrauði, að ég held um 50 kökur. þetta var alveg ofsalega gaman, og við tókum nett tjútt með söng og tilheyrandi áður en allt var afstaðið.


...og úr varð bara hið besta laufabrauð.

- mundi | 12:52
Umræður

Malla:

Járn til útskurðar!! Mundi ertu ekki sannur Akureyringur, sem sker út með hníf í hverja köku fyrir sig???? Hnussss..... En samt frábært hjá ykkur að skella ykkur í laufabrauðsgerð, burt séð frá öllu gríni í mér :S

(19.12.05 14:25)

mundi:

ég reyni nú að halda mig eins langt í burt frá þessum útskurði og mögulegt er á 15 fermetrum - stóð mig hins vegar vel í að fletja .... ;)

(19.12.05 15:07)

Bjössi:

ég hefði nú getað sent þér bara kökurnar tilbúnar, þær fást hérna í bakaríinu, stórfínar- þá þarftu hvorku járn né útskurðarhæfileika, bara matarlist, og af henni hefurðu nóg ef ég man rétt;)

(19.12.05 16:33)

Ziggy Flotti:

Tilhvers eru menn að skera þetta út, það eina sem hefst upp úr því er að það molnar meira ofan í klofið á þér?? :-)

(20.12.05 18:22)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni