Föstudagur 30. desember

keðjur

já þessi góða skíðaferð varð bara að hálfgerðri svaðilför. fram að hádegi var svona líka bongóblíða en þá snarþykknaði upp og fór að snjóa. við héldum ótrauð áfram skíðaiðkun fram eftir degi samt sem áður. þetta er alveg frábært skíðasvæði. ég náði því að detta á ofsahraða í dag og mátti litlu muna að ég tæki niður einn franskan brettamann, en hann lifir og ég líka. en hjálmurinn nýji sannaði gildi sitt.


þegar við svo ætluðum að fara heim var allt komið á kaf í snjó og fjallvegirnir að verða vafasamir fyrir litla fólksbíla á sumardekkjum!! já - þau voru hreint ekki að gera marga góða hluti sumardekkin, en við brugðumst snarlega við, stoppuðum í fjalla-kaupfélaginu og versluðum keðjur. á keðjunum var svo ekið heim. nú er sænska freðmýrastálið því hlekkjum vafið og óstöðvandi með öllu í verstu vetrarhörkum. ég stefni að því að bæta tíma smurkoppanna sem sigruðu suðurpólinn á einhverjum fordbúðing eins fljótt og auðið verður. :-)


leiðin heim sóttist hægt vegna umferðar og það er búið að taka okkur rúma 3 tíma að komast hingað heim, eitthvað sem tekur vanalega svona 40 mínútur. en hér erum við!

- mundi | 18:41
Umræður




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni