Fimmtudagur 8. desember

þetta helst

það er bara ekkert lát á rigningu og þoku hér. hér er nú búið að vera þannig veður síðan ég fór á skíði síðast, og nú er slydda fyrir utan gluggann minn. sannkallað reykjavíkurveður, en hins vegar er spáin eins og fyrir norðan ! :-)


verkefni dagsins datt inn á borðið til mín í gær. Frú Rósdal (Madame Rosanvallon) sú sem býr hérna á efri hæðinni kom til mín í gær. heima hjá henni er ýmislegt úr lagi gengið og bað hún mig að koma til þess að reyna að laga fyrir sig sitt lítið af hverju. Þar er hurð að detta af lömum, vantar gerekti á aðra, lýsing í ólagi, lampi sem þarf að lóða saman og ég veit ekki hvað og hvað. ég ætla því að reyna að kippa því sem ég get í liðinn á þeim bæ.


já húsvörðurinn færir út kvíarnar....

- mundi | 07:37
Umræður

torfi:

... útrás ?

(08.12.05 11:04)

Jón Gunnar:

Mér dettur í hug klámmynda satíran hjá Fóstbræðrum: Enter Benedikt Erlingsson í hlutverki húsvarðar, ber að ofan í smekkbuxum með rauða verkfæratösku "Er eitthvað að hér?"
Helga Braga situr gleið yfir eldhúsvaskinum "Pípan mín er stífluð!"

(08.12.05 17:40)

mundi:

já - þú ert þá bara í því ;)

(08.12.05 17:59)

sara:

vissuð þið hvað heimurinn er lítill. er að fatta núna að ég þekki hann Jón Gunnar líka. pjúff..ha

(08.12.05 23:56)

Torfi:

... þá erum við öll eins - því mér finnst eins og ég kannist eitthvað við kauða og hans fólk :-)

(09.12.05 14:01)

Jón Gunnar:

Það er nú ekki slæmt fyrir ykkur að þekkja hann mig. Ég var á tónleikum með Barða og Bang Gang. Þetta er einn mesti höfuð snillingur sem ég hefi komist í tæri við. Nánar síðar.

J.

(11.12.05 03:25)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni