Þriðjudagur 13. desember

bæjarrölt og parkeringar

í dag lagði ég bílnum mínum í fyrsta skipti á algerlega franskan máta - ég hreinlega ruddi bílnum fyrir aftan nokkra metra þangað til það var komið stæði fyrir volfgang. hananú!!! setti svo í frígír og lét mig hverfa. annars fór ég og skoðaði miðbæinn, þar eru nú huggulegir jólamarkaðir í litlum bjálkahúsum á öllum torgum. stemming að rölta þar um, verslaði nú ekki neitt en sá, eins og vanalega, þegar ég ætla að finna eitthvað handa öðrum, - eitthvað handa mér... ;)


afmælismánuðurinn desember er byrjaður og hann snæbjörn er afmælisbarn dagsins - til lukku.

- mundi | 20:19
Umræður

sara:

stolt af því að þekkja alvöru kall sem kann að leggja. finnst þú eigir að prófa þetta á laugaveginum.

(14.12.05 07:33)

Ziggy Flotti:

Humm ekki sammála því menn eru barðir á íslandi fyrir slíkt, látum konurnar umstuðarabeyglurnar áfram :-)

(14.12.05 08:33)

Jón Gunnar:

Einusinni var kall að leita sér að bílastæði fyrir Merceides-inn sinn á Rodeo Drive í Beverly Hills. Hann spottaði loksins eitt laust og var við það að leggja í stæðið þegar annar gaur á Ferrari tekur frammúr honum og leggur í stæðið fyrir framan nefið á honum. Stekkur svo út úr bílnum og segir: "Sko...þetta getur maður bara gert ef maður er á aflmiklum sportbíl!" Gaurinn á Benzanum segir ekkert en gefur honum í botn og gluðar á Ferrari bifreiðina af miklu afli og kengbeyglar hann. Bakkar svo aðeins og endurtekur leikinn. Stígur svo út og segir við þrumu lostinn Ferrari eigandann: "Sko...þetta getur maður bara gert ef maður á nóg af peningum!"

(14.12.05 13:46)

sara:

ahhahha.. konur eru jafn slæmir bílstjórar og karlmenn.

(14.12.05 13:55)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni