Föstudagur 9. desember

Það er að koma helgi

Ég var að koma heim frá því að binda saman 30 bls. verkefni sem ég þarf að skila á mánudaginn. Gott að vera búin með það en enn er nóg eftir: 5 verkefni og eitt próf. Öll þessi verkefni eiga að vera á bilinu 10-40 bls. svo það er nóg að gera. Ekki má svo gleyma því að ég verð að vera búin að undirbúa fullt af kennsluefni fyrir verknámið mitt áður en ég legg í'ann heim. Ég átti fund með leiðbeinandanum mínum í morgun þar sem við sendum frönskukennaranum sem mun hafa umsjón með mér í MR bréf þar sem við báðum hana (og hinn frönskukennarann) um að prufa kennsluefnið mitt líka svo að niðurstöðurnar yrðu marktækari. Vonandi taka þær vel í það en það er þó alls ekki öruggt þar sem þeim finnst kannski að þá sé verið að leggja of mikla áherslu á "munnlega" frönsku, veit ekki hvernig þetta fer, kemur bara í ljós. Kannskui hafa þær engan áhuga á að taka leiðsögn frá.


En ég ætla að taka mér frí frá þessu öllu saman á morgun og fara á skíði með Munda, Eiríki og Helgu og hver veit nema Guðni skelli sér líka með. Það er búið að snjóa alveg helling undanfarna daga og spáð glampandi sól á morgun. Eftir skíðin er stefnan svo tekin á afmæli hjá Ásdísi. Stefnir því allt í frábæran dag á morgun!


Góða helgi!

- Svanhildur | 13:29
Umræður

Torfi:

Góða helgi sömu leiðis og skíðist ykkur sem best.

(09.12.05 14:02)

sara:

góða helgi

(09.12.05 15:46)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni