desember 31, 2005Gleðilegt ár
Hjá okkur verður líklega ekki mikið af flugeldum þetta árið. Því látum við okkur þessa mynd af netinu nægja þetta skiptið.
-mundi | 12:06
| Comments (5)
desember 30, 2005keðjurjá þessi góða skíðaferð varð bara að hálfgerðri svaðilför. fram að hádegi var svona líka bongóblíða en þá snarþykknaði upp og fór að snjóa. við héldum ótrauð áfram skíðaiðkun fram eftir degi samt sem áður. þetta er alveg frábært skíðasvæði. ég náði því að detta á ofsahraða í dag og mátti litlu muna að ég tæki niður einn franskan brettamann, en hann lifir og ég líka. en hjálmurinn nýji sannaði gildi sitt.
-mundi | 18:41
| Comments (0)
jæja nú verður látið reyna á......útivistarfatnaðinn. já það er víst til lítils að eiga hann bara en nota ekki. hér er nefnilega alveg svakakuldi, og á enn að kólna. skilst að það eigi að ná -19 stigum í kvöld og nótt. það er ekki vanalegt hér á láglendinu.
-mundi | 06:33
| Comments (1)
desember 29, 2005milli jóla og nýárshérna hjá okkur hafa jólin verið róleg og góð. jóladag og annan var púls vart mælanlegur, þriðja dag jóla fór hann að finnast aftur. en alveg eins og við hefðum haldið jólin heima þá hefur ekki verið skortur á einhverju að bíta og brenna. það er margt sem búið er að framreiða hérna undanfarna daga, þar á meðal hörpuskel, andakjöt og lifrar, kornhænur, hráskinku og melónur og svo videre. millitíminn á konfektkassanum var einnig með besta móti þetta árið.
-mundi | 13:02
| Comments (5)
desember 24, 2005desember 23, 2005þorláksmessasvona lítur torg Victors Húgó út þessa dagana. þar er jólamarkaður sem ég fór og myndaði rétt eftir ljósaskiptin í gær. dagurinn í dag verður annars tekinn rólega fram að kveldmat en þá erum við boðin til Helgu og Eiríks og hinna ísfirðinganna í saltfisk og grín.
-mundi | 10:27
| Comments (3)
desember 22, 2005skýjum ofar
mig langar nú að byrja á því að þakka fyrir allar afmæliskveðjurnar sem mér bárust í fyrradag. takk.
-mundi | 10:13
| Comments (4)
desember 20, 2005....ég held að ég verði að fara að ná í skíðin mín. þau enduðu nefnilega á verkstæði eftir síðustu skíðaferð, fengu slatta af rispum. maður á víst ekki að skíða í grjóti. ætli ég geri það ekki að verkefni dagsins. það er nefnilega að koma skíðahugur í mig aftur. svo þyrfti ég að kíkja í bæinn líka. hér mega jólin nefnilega bara alveg fara að koma, það er næstumþví allt klárt!
-mundi | 09:45
| Comments (10)
desember 19, 2005Laufabrauð.var verkefni laugardagsins. fyrir þónokkru síðan ákváðum við að steikja laufabrauð fyrir jólin. en þannig er nú mál með vexti að ýmislegt sem þarf til þeirrar gerðar er vandfundið hér í frans. við töluðum því við billundhjónin og fengum sent frá þeim uppskrift og allt sem þurfti ásamt járni til útskurðar. Snæbjörn gaf okkur svo uppskrift af rúgmjölskökum.
-mundi | 12:52
| Comments (4)
desember 16, 2005í kvöld......verða eldaðar og étnar froskalappir...
-mundi | 17:58
| Comments (2)
desember 14, 2005reyna bara að falla í hópinn.....
-mundi | 13:55
| Comments (8)
desember 13, 2005bæjarrölt og parkeringarí dag lagði ég bílnum mínum í fyrsta skipti á algerlega franskan máta - ég hreinlega ruddi bílnum fyrir aftan nokkra metra þangað til það var komið stæði fyrir volfgang. hananú!!! setti svo í frígír og lét mig hverfa. annars fór ég og skoðaði miðbæinn, þar eru nú huggulegir jólamarkaðir í litlum bjálkahúsum á öllum torgum. stemming að rölta þar um, verslaði nú ekki neitt en sá, eins og vanalega, þegar ég ætla að finna eitthvað handa öðrum, - eitthvað handa mér... ;)
-mundi | 20:19
| Comments (4)
desember 12, 200522 lönd, 9 % af heiminumSem sagt nóg eftir!!
-Svanhildur | 20:42
| Comments (1)
desember 10, 2005Skíðieftir 9 daga þoku og regn kom tíundi dagurinn og þrátt fyrir að nú sé enn myrkur má greina að skýin eru farin annað. þá er um að gera að drífa sig bara upp í les2alpes - 3600 metrar og ekkert minna.
-mundi | 06:19
| Comments (0)
desember 9, 2005Það er að koma helgiÉg var að koma heim frá því að binda saman 30 bls. verkefni sem ég þarf að skila á mánudaginn. Gott að vera búin með það en enn er nóg eftir: 5 verkefni og eitt próf. Öll þessi verkefni eiga að vera á bilinu 10-40 bls. svo það er nóg að gera. Ekki má svo gleyma því að ég verð að vera búin að undirbúa fullt af kennsluefni fyrir verknámið mitt áður en ég legg í'ann heim. Ég átti fund með leiðbeinandanum mínum í morgun þar sem við sendum frönskukennaranum sem mun hafa umsjón með mér í MR bréf þar sem við báðum hana (og hinn frönskukennarann) um að prufa kennsluefnið mitt líka svo að niðurstöðurnar yrðu marktækari. Vonandi taka þær vel í það en það er þó alls ekki öruggt þar sem þeim finnst kannski að þá sé verið að leggja of mikla áherslu á "munnlega" frönsku, veit ekki hvernig þetta fer, kemur bara í ljós. Kannskui hafa þær engan áhuga á að taka leiðsögn frá.
-Svanhildur | 13:29
| Comments (2)
desember 8, 2005þetta helstþað er bara ekkert lát á rigningu og þoku hér. hér er nú búið að vera þannig veður síðan ég fór á skíði síðast, og nú er slydda fyrir utan gluggann minn. sannkallað reykjavíkurveður, en hins vegar er spáin eins og fyrir norðan ! :-)
-mundi | 07:37
| Comments (6)
desember 6, 2005passhér er status quo. full rólegt hjá mér en full mikið að gera hjá Svanhildi. það hefur ekki viðrað á skíðin undanfarna daga, en síðan ég fór síðast hefur snjóað í fjöllin á hverjum degi held ég bara. þegar rofar til í þokunni þá er ég stokkinn af stað.
-mundi | 15:04
| Comments (5)
desember 5, 2005Heaven and hell
mér finnst þetta alltaf jafn sniðugt :) njótið dagsins
-mundi | 13:39
| Comments (4)
desember 1, 2005allt brjálað ......
-mundi | 14:44
| Comments (7)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Gleðilegt ár
keðjur jæja nú verður látið reyna á... milli jóla og nýárs GLEÐILEG JÓL þorláksmessa skýjum ofar .... Laufabrauð. í kvöld... Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|