Miðvikudagur 30. nóvember

Skíððððððiiiiiiiiiiiiiii...................

fyrsti skíðadagurinn okkar hérna er að baki. við slitum okkur upp í morgun, helltum kakó á brúsa og fórum til fjalla. hann Guðni fór með okkur,hann er einn úr íslendingaklúbbnum hérna. færið var ágætt, veðrið breytilegt svo það var allt klárt. því miður datt Guðni dálítið illa þannig að ferðin varð svolítið snubbótt, mar á fæti og jafnvel tognun er ekki það besta þegar á að skíða.

því fórum við fyrr heim en ella, en höfum þær fréttir að Guðni sé á batavegi.


- komum við í skíðabúðinni á heimleiðnni og fengum okkur skíðahjálma, eitthvað sem við höfum ætlað að gera síðan ég tók 9 metra stökk án mjúkrar lendingar í fyrra... Torfi manstu??? :)


næsta brottför á skíði: fyrramálið kl 8.30 - - - over and out

- mundi | 18:55
Umræður

Hildur:

Líst mér vel á þessa skíðahjálma ykkar, það er líka til ansi gott vídjó af þér mundi þar sem þú skíðar niður brekkuna aftur á bak og lentir á hausnum .. hjálmurinn hefði komið sér vel þar.. Góða skemmtun á morgun :)

(30.11.05 19:59)

Torfi:

nei nei, ég man ekki

(01.12.05 12:41)

mundi:

þá held ég að þú ættir nú að láta að líta eitthvað á toppstykkið... :)

(01.12.05 14:46)

Torfi:

já, og kannski fleiri stykki...

(01.12.05 17:26)

mundi:

það er nefnilega sem mig minni að það síðasta sem ég hafi gert fyrir það flugtak hafi verið að skíða yfir snjóbrettið þitt .... ?!?!?!!! rifjar það eitthvað upp?

(01.12.05 17:39)

Torfi:

Hugsanlega....

.... séu menn tæpir á að keyra félagann niður gleymist það síður ;-)

(02.12.05 08:18)

Torfi:

p.s. þessir Torfar sem svara hérna að ofan eru hugsanlega ekki ég - eftilvill er þarna um einhvern að ræða sem þykist vera ég.

Margur heldur mig sig - en enginn Gumma Sig.

(02.12.05 08:19)

Bjössi:

Torfi kraftajötunn kannski?

(02.12.05 09:32)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni