Mánudagur 28. nóvember

Pólitísk spilling

Einn af kennurunum mínum tekur stundum að sér frönskukennslu fyrir diplómata Evrópusambandsins og eyddi helginni í Brussel við þá iðju. Þar átti hún áhugavert samtal við franskan diplómata eða ráðherra eða eitthvað svoleiðis sem sér um það að skipta veiðiheimildum á milli þjóða Evróðusambandsins sem og að semja við þjóðir utan sambandsins. Hann sagði kennaranum mínum frá því að nú um daginn hefði komið til hans sendiherra frá ákveðnu landi utan sambandsins (hann vildi ekki segja frá hvaða landi) og rétti honum umslag með 500.000 € í 500 € seðlum (til að fá upphæðina í íslenskum krónum má margfalda með 75). Fyrir þessa upphæð átti franski evrópusambandgaurinn að gera "góða" samninga við viðkomandi land. Frakkinn tók við peningunum en þar sem hann er mjög heiðarlegur þá fór hann með umslagið til einhverrar yfirstjórnar sem kallaði forsætisráðherra viðkomandi lands á sinn fund til að skamma hann. Hann afsakaði sig og sagðist bara hafa haldið að svona gengju hlutirnir fyrir sig.


Þessi Frakki var greinilega strangheiðarlegur en maður þarf kannski ekkert að vera svo hissa á hversu margir stjórnmálamenn eru spilltir. Það eru ábyggilega ekki allir færir um að neita svona tilboði. Eða hvað?

- Svanhildur | 19:55
Umræður

torfi:

... var sjávarútvegsráðherra í Brussel - jæja - blessaður kallinn.

(29.11.05 10:01)

mundi:

... það kom nú ekki fram að þetta hefði verið sá íslenski. en ætli það sé til liður í íslenskum fjárlögum sem heitir "mútur til pappakassanna í Bruxelles" ????

(29.11.05 17:29)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni