Föstudagur 18. nóvember

Magnað maður magnað

tn_DSC02646.JPG

maður varð ekki svikinn af ferðinni á miðvikudaginn. það er sko alveg ofboðslega gaman að fara þarna norður í búrgúndí að upplifa þessa stemmingu sem myndast þegar Beaujeulaisið fer að flæða.

þetta skiptið hittum við tvífara robert de niro og ýmsa aðra ágætismenn, sem áttu það eitt sameiginlegt að vera ógáfulegir með eindæmum. ég hef sjaldan hlegið eins mikið og þetta kvöld.


hingað komum við svo rétt fyrir sjö á fimmtudagsmorguninn, svanhildur dreif sig í skólann en við magni fórum í háttinn. fimmtudagar eru einmitt lengstu skóladagarnir hjá svanhildi en þá kemur hún heim 18.30. hún var orðin þreytt þá skal ég segja ykkur.


magna fylgdum við á lestarstöðina snemma í morgun eftir að hafa átt ótrúlega skemmtilega viku hérna saman.


Annað:

það er fyrsti í sköfu í dag, hérna hefur nefnilega kólnað verulega á síðustu dögum og í nótt kom fyrsta næturfrostið. brrrr....

- mundi | 09:37
Umræður

Guðlaug:

Hvernig væri nú að bjóða móðuts. með næst

(18.11.05 15:14)

mundi:

ég reikna með að orðið "móðuts." þýði móðursystir á siglfirsku.


hún er alltaf jafn velkomin - það er bara spurning um að láta sjá sig.... :)

(18.11.05 16:27)

Guðlaug:

er þetta ekki kjörið svæði fyrir mótorhjólaferð
þú gætir kanski kortlagt svæðið með smökkunarstaði fyrir mig í huga

(23.11.05 13:22)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni