Mánudagur 7. nóvember

hakkaður....

já ég hef verið hakkaður. tölvan er búin að vera leiðinleg við okkur undanfarið og í gærkvöldi tók steininn alveg úr þegar hún vildi helst ekkert fyrir okkur gera. ég hringdi því símtal til danmerkur í morgun og talaði við undrabarnið jóa.


eftir dálitlar æfingar og rannsóknir komst hann að því að ég hefði verið "hakkaður". einhver óprúttinn aðili hafði semsagt komið sér fyrir í vélinni hjá mér. eftir enn frekari æfingar töldum við okkur hafa upprætt þessa andsetningu, og vonandi fer þetta allt að virka betur. en það skýrist nú væntanlega fljótt hvort þetta hefur dugað til, - kemur í ljós. jóa þökkum við þessa særingar. jói, þú ert galdrakall.


annars áttum við stórgóða helgi, fórum í bæinn á laugardaginn og versluðum aðeins og fórum svo í mat með íslendingunum hérna í grenoble um kvöldið. það var velheppnað, matur mikill og góður og allir í góðu skapi.


- mundi | 13:10
Umræður

Ziggy Flotti:

Hætta að fara inn á klámsíðurnar Mundi, nei nei!!

(07.11.05 18:12)

mundi:

....einhverra hluta vegna átti ég von á kommenti sem væri eitthvað á þessa leið!!! :)

(08.11.05 09:19)

Fanney:

eins og ég hefði sagt það sjálf, engar klámsíður.

(10.11.05 09:09)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni