Fimmtudagur 3. nóvember

Gestagangur

tn_DSC09227.JPG

undanfarna viku hefur verið í ýmsu að snúast hér í hreppi. við fengum Snæbjörn, Ellu og Gauta í heimsókn og með þeim komu 2 hjón sem eru vinir þeirra.

þau komu hingað á fimmtudaginn og fóru á mánudagsmorgun. á þeim tíma var ýmsu komið í framkvæmd, farið til fjalla, í hellaskoðun og hnetuverslun, bæjarferðir, bastillutúrar, Annecy var kynnt fyrir gestunum ásamt því að við fórum að skoða palais idéal. einhverju gómsætu var svo sporðrennt á hverjum degi og því skolað niður í maga með góðum vínum.


hér var því nóg um að vera og við skemmtum okkur vel saman hérna í þennan stutta tíma. á mánudagsmorguninn fórum við svo til fjalla, aðeins að skoða okkur um hjá Gonna. þaðan komum við svo í gærkvöldi.


myndin hér að ofan er af íslendingahópnum þar sem hann er að virða fyrir sér draumahöllina.

- mundi | 10:56
Umræður

sara:

flott þessa nýja forsíðumynd af ykkur skötuhjúum. :)

(03.11.05 16:58)

svanhildur:

Takk fyrir það. Ef mig minnir rétt þá er þessi mynd tekin uppi á Keili í sumar.

(03.11.05 17:48)

Hanna systir:

Hæ hæ ;) Gott að þið hafið það alltaf gott þarna úti! Leiðinlegt samt með óeirðirnar - en Mundi, geturu ekki kennt þeim einhverja góða íslenska koktaila? ;) Híhí
Mig langar að spurja ykkur útí þessar "draumahöll"? Þetta er ekkert smá mannvirki! hvaða hlutverki þjónaði hún og hver byggði hana eiginlega?
Bara svona smá vangaveltur...

(12.11.05 21:06)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni