Þriðjudagur 8. nóvember

bjánar

þá eru ólætin í parís komin hingað. í kvöld verða almenningssamgöngur hér í grenoble niðurlagðar vegna þess að einhverjir snillingar voru að henda mólótovkokteilum í sporvagninn í gær, ásamt því að brenna eina 16 bíla.


sem betur fer er þetta rugl allt saman fjarri okkur í hinum enda bæjarins, rétt hjá Grand Place verslunarmiðstöðinni fyrir þá sem hafa komið hingað og hana þekkja.


- mundi | 17:33
Umræður

sara:

lélegar lestar ha..
neinei. það er hræðilegt hvernig ástandið er orðið, maður finnur til með öllum málsaðilum.. það er bara alltaf spurning hvort ofbeldi og eyðilegging á eignum annarra sé rétta leiðin til að koma boðspab á framfæri.. . vona bara að þið séuð á öruggum og góðum stað.
knúsar

(08.11.05 18:30)

Jón Gunnar:

Jæja Mundur...nú er um að gera að setja fimm Nitro Magnum í Remington fallstykkið þitt og geyma við hliðina á rúminu "and take no prisoners!"

Mr.Benelli

(08.11.05 22:10)

Fanney:

Það er eins gott að það sé í lagi með ykkur. Skrítið að heyra fréttir frá París um einhverjar óeirðir, sem fólk kippir sér nú kanski ekkert svo mikið upp yfir, nema eins og í okkar tilviki þá höfum við áhyggjur af fjölskyldunni sem BÝR þarna. Farið vel með ykkur og passið ykkur á þessum vitleysingum.

PS. vonandi láta þeir drossíuna ykkar í friði...

(10.11.05 09:07)

Jón Gunnar:

Ég, Pálmi í Gröf og Mundi bjuggum einusinni til Molotov kokteil þegar við vorum uppá okkar al-bezta. Þar sem bensínbirgðir pápa gamla voru af skornum skammti brugðum við á það ráð að nota Dieselolíu. Flaskan var Sinelco og kveikjan gamall segldúkur sem við fundum í kartöflugeymslunni. Sprengingin skyldi eiga sér stað á ruslahaugum Ytri-Tjarnar búsins en þar ægði saman timbri, kartöflupokum, dauðum kálfum og öðru hefðbundnu sveitaheimilissorpi. Það er skemmst frá því að segja að ég hélt á flöskunni, Mundi bar eld að og Pálmi fékk að kasta henni þannig að allir fengu að taka þátt. Sprengingin kom aldrei en þegar kveikurinn var brunnin upp lak díselolían úr flöskunni og niður í þurrt moð sem kviknaði í á augabragði. Eldurinn barst loks í timbrið og dauðu kálfana og logaði í fjóra daga.

Og mórall þessarar sögu krakkar, er að alltaf alltaf nota besínblöndu í Molotov kokteila!

Kveðja,

Jón Gunnar

(11.11.05 12:07)

Torfi:

... fari þessir menn allir suður og niður - norður viljum við ekki fá það !!

(12.11.05 18:25)

Torfi:

... ég meinti þá... þá, ekki það - skíttmeða

(12.11.05 18:30)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni