nóvember 30, 2005

Skíððððððiiiiiiiiiiiiiii...................

fyrsti skíðadagurinn okkar hérna er að baki. við slitum okkur upp í morgun, helltum kakó á brúsa og fórum til fjalla. hann Guðni fór með okkur,hann er einn úr íslendingaklúbbnum hérna. færið var ágætt, veðrið breytilegt svo það var allt klárt. því miður datt Guðni dálítið illa þannig að ferðin varð svolítið snubbótt, mar á fæti og jafnvel tognun er ekki það besta þegar á að skíða.

því fórum við fyrr heim en ella, en höfum þær fréttir að Guðni sé á batavegi.


- komum við í skíðabúðinni á heimleiðnni og fengum okkur skíðahjálma, eitthvað sem við höfum ætlað að gera síðan ég tók 9 metra stökk án mjúkrar lendingar í fyrra... Torfi manstu??? :)


næsta brottför á skíði: fyrramálið kl 8.30 - - - over and out

-mundi | 18:55 | Comments (8)

nóvember 28, 2005

Pólitísk spilling

Einn af kennurunum mínum tekur stundum að sér frönskukennslu fyrir diplómata Evrópusambandsins og eyddi helginni í Brussel við þá iðju. Þar átti hún áhugavert samtal við franskan diplómata eða ráðherra eða eitthvað svoleiðis sem sér um það að skipta veiðiheimildum á milli þjóða Evróðusambandsins sem og að semja við þjóðir utan sambandsins. Hann sagði kennaranum mínum frá því að nú um daginn hefði komið til hans sendiherra frá ákveðnu landi utan sambandsins (hann vildi ekki segja frá hvaða landi) og rétti honum umslag með 500.000 € í 500 € seðlum (til að fá upphæðina í íslenskum krónum má margfalda með 75). Fyrir þessa upphæð átti franski evrópusambandgaurinn að gera "góða" samninga við viðkomandi land. Frakkinn tók við peningunum en þar sem hann er mjög heiðarlegur þá fór hann með umslagið til einhverrar yfirstjórnar sem kallaði forsætisráðherra viðkomandi lands á sinn fund til að skamma hann. Hann afsakaði sig og sagðist bara hafa haldið að svona gengju hlutirnir fyrir sig.


Þessi Frakki var greinilega strangheiðarlegur en maður þarf kannski ekkert að vera svo hissa á hversu margir stjórnmálamenn eru spilltir. Það eru ábyggilega ekki allir færir um að neita svona tilboði. Eða hvað?

-Svanhildur | 19:55 | Comments (2)

Grenoble

tn_DSC08790.JPG


Nú fer maður að skerpa skíðin - en vaxið verður að bíða þar sem straujárnið varð eftir á íslandi.


-mundi | 16:35 | Comments (3)

nóvember 25, 2005

Það er allt á kafi í snjó

Vildi bara deila því með ykkur að snjónum hefur kyngt niður í nótt og enn snjóar. Það er allt á kafi. Alveg æðislegt!

-Svanhildur | 07:06 | Comments (4)

nóvember 21, 2005

Skeytin

frá grenoble er þetta helst:

A) við snæddum líbanskan mat með íslendingafélaginu á föstudaginn


B) annars var helgin með rólegasta móti, svanhildur las skólabækur og ég eina skáldsögu, Bítlaávarpið


C) það er kominn vetur hérna og það er skítakuldi


D) það er einmitt þá sem maður saknar heita vatnsins á íslandi, jafnt til kyndingar og sturtuferða


E) og það er meira að segja snjókoma í langtímaspánni, það er nú fínt.


Roger over and out

-mundi | 09:41 | Comments (6)

nóvember 18, 2005

Magnað maður magnað

tn_DSC02646.JPG

maður varð ekki svikinn af ferðinni á miðvikudaginn. það er sko alveg ofboðslega gaman að fara þarna norður í búrgúndí að upplifa þessa stemmingu sem myndast þegar Beaujeulaisið fer að flæða.

þetta skiptið hittum við tvífara robert de niro og ýmsa aðra ágætismenn, sem áttu það eitt sameiginlegt að vera ógáfulegir með eindæmum. ég hef sjaldan hlegið eins mikið og þetta kvöld.


hingað komum við svo rétt fyrir sjö á fimmtudagsmorguninn, svanhildur dreif sig í skólann en við magni fórum í háttinn. fimmtudagar eru einmitt lengstu skóladagarnir hjá svanhildi en þá kemur hún heim 18.30. hún var orðin þreytt þá skal ég segja ykkur.


magna fylgdum við á lestarstöðina snemma í morgun eftir að hafa átt ótrúlega skemmtilega viku hérna saman.


Annað:

það er fyrsti í sköfu í dag, hérna hefur nefnilega kólnað verulega á síðustu dögum og í nótt kom fyrsta næturfrostið. brrrr....

-mundi | 09:37 | Comments (3)

nóvember 16, 2005

Beaujoulais Nouveau

við erum búin að taka rosalega flottan pakka á lífinu þessa vikuna með sommeliernum. á daginn höfum við farið og gert eitthvað skemmtilegt og á kvöldin hefur verið eldaður góður matur og með honum hefur verið valið vín í glasi. stórmagnað.


í kvöld er svo að koma að því sem allir hafa beðið eftir, hápunkti heimsóknarinnar þar sem við ætlum að taka rútuna til Beaujou sem er smábær, en þaðan kemur einmitt beaujoulais nouveau. þar verður neglan tekin úr fyrstu tunnu sumaruppskeru franskra rauðvína í kvöld og á morgun er svo hátíðin um allt frakkland og heim. minnugir lesendur muna eflaust eftir því þegar við hittum tvífara bubba morthens þar fyrir tveimur árum. þarna verður veitt vont vín og nóg af því, en upplifunin er einstök.


mikið grín og gaman, áætluð heimkoma er 7 í fyrramálið.

-mundi | 18:32 | Comments (6)

nóvember 14, 2005

grenoble og gestur. já á föstudaginn kom magni hingað til okkar. við erum búin að eiga góða helgi hérna saman, fórum út að borða saman á laugardag og fórum í góða gönguferð um bæinn í gær.


nú er svanhildur farin í skólann og við magni ætlum í dagsferð suður til Avignon. meira seinna

-mundi | 07:23 | Comments (3)

nóvember 9, 2005

.

-Svanhildur | 10:01 | Comments (3)

nóvember 8, 2005

bjánar

þá eru ólætin í parís komin hingað. í kvöld verða almenningssamgöngur hér í grenoble niðurlagðar vegna þess að einhverjir snillingar voru að henda mólótovkokteilum í sporvagninn í gær, ásamt því að brenna eina 16 bíla.


sem betur fer er þetta rugl allt saman fjarri okkur í hinum enda bæjarins, rétt hjá Grand Place verslunarmiðstöðinni fyrir þá sem hafa komið hingað og hana þekkja.


-mundi | 17:33 | Comments (6)

nóvember 7, 2005

hakkaður....

já ég hef verið hakkaður. tölvan er búin að vera leiðinleg við okkur undanfarið og í gærkvöldi tók steininn alveg úr þegar hún vildi helst ekkert fyrir okkur gera. ég hringdi því símtal til danmerkur í morgun og talaði við undrabarnið jóa.


eftir dálitlar æfingar og rannsóknir komst hann að því að ég hefði verið "hakkaður". einhver óprúttinn aðili hafði semsagt komið sér fyrir í vélinni hjá mér. eftir enn frekari æfingar töldum við okkur hafa upprætt þessa andsetningu, og vonandi fer þetta allt að virka betur. en það skýrist nú væntanlega fljótt hvort þetta hefur dugað til, - kemur í ljós. jóa þökkum við þessa særingar. jói, þú ert galdrakall.


annars áttum við stórgóða helgi, fórum í bæinn á laugardaginn og versluðum aðeins og fórum svo í mat með íslendingunum hérna í grenoble um kvöldið. það var velheppnað, matur mikill og góður og allir í góðu skapi.


-mundi | 13:10 | Comments (3)

nóvember 4, 2005

þrýstingurinn í loftinu...

...er veðrið inní mér, söng björn jörundur um árið. ég ætla nú ekki að skrifa neitt um innri þrýsting hér í dag, en kannski aðeins um þann ytri.


það er nefnilega svolítið skondið hér í fjöllóttu landslaginu þegar maður tekur eitthvað í túbu eða brúsa með sér til fjalla. hér er hækkunin nefnilega svo mikil að það ýmist tútnar allt út eða skreppur saman. sem dæmi þá tókum við með okkur flösku af sólblómaolíu upp í fjöllin á mánudaginn. hún var úr plasti og innihaldið var ekkert sérstaklega mikið. þegar við tókum hana svo inn úr bílnum uppfrá var hún úttútnuð öll og gaf frá sér hljóð eins og kampavínsflaska þegar hún var opnuð. sama flaska fór svo ofan í tösku og þegar hún var skoðuð þegar heim var komið var hún öll orðin samankrumpuð eins og rúsína.


það eru einmitt ansi margir sem brenna sig á þessu þegar þeir fara á skíði á svona stöðum eins og les2alpes þar sem farið er mjög hátt upp. þessir skynsömu setja nefnilega sólvörn í bakpokan, en stundum springur túban í bakpokanum á leiðinni upp og flest það sem ekki þurfti sólvörn fær hana.


- þannig er nú það, góða helgi.

-mundi | 10:23 | Comments (4)

nóvember 3, 2005

Gestagangur

tn_DSC09227.JPG

undanfarna viku hefur verið í ýmsu að snúast hér í hreppi. við fengum Snæbjörn, Ellu og Gauta í heimsókn og með þeim komu 2 hjón sem eru vinir þeirra.

þau komu hingað á fimmtudaginn og fóru á mánudagsmorgun. á þeim tíma var ýmsu komið í framkvæmd, farið til fjalla, í hellaskoðun og hnetuverslun, bæjarferðir, bastillutúrar, Annecy var kynnt fyrir gestunum ásamt því að við fórum að skoða palais idéal. einhverju gómsætu var svo sporðrennt á hverjum degi og því skolað niður í maga með góðum vínum.


hér var því nóg um að vera og við skemmtum okkur vel saman hérna í þennan stutta tíma. á mánudagsmorguninn fórum við svo til fjalla, aðeins að skoða okkur um hjá Gonna. þaðan komum við svo í gærkvöldi.


myndin hér að ofan er af íslendingahópnum þar sem hann er að virða fyrir sér draumahöllina.

-mundi | 10:56 | Comments (3)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni