Svartur á leik

ég var að lesa það að þessi bók, svartur á leik yrði fulltrúi íslenskra sakamálasagna í keppninni um glerlykilinn, bestu norrænu sakamálasöguna.
ég var einmitt að klára þessa bók í fyrradag. hún er alveg mögnuð, stórskemmtileg og á köflum ógeðfelld íslensk undirheimalesning. greinilegt að höfundurinn hefur unnið mikla heimavinnu áður en hann kom þessu á blað.
segjum þetta gott úr bókmenntahorninu að sinni ;-)
sara:
tek þig á orðinu.
(13.10.05 14:32)
Ziggy Flotti:
.. þig á borðinu!! djók!!
(13.10.05 17:35)
mundi:
menn eru gamansamir þykir mér :)
(13.10.05 17:54)
Torfi:
mikið grín - mikið gaman
(14.10.05 11:58)