Miðvikudagur 19. október

Skólaskemmtun

í gærkvöldi fórum við Mundi á skólaskemmtun fyrir nemendur í minni deild sem og nema við útlendingadeildina. Svona skemmtun var líka haldin í fyrra og tókst svo vel að það var ákveðið að endurtaka leikinn. Aðgangseyrir á skemmtunina er matur eða drykkur frá heimalandinu eða heimasýslunni (fyrir Frakkana). Í fyrra mættum við Mundi á svæðið með hákarl og brennivín og vakti þetta þvílíka lukku. Það voru nú ekki allir mjög hrifnir af hákarlinum (meira kannski bara tveir með Munda) en allir voru þvílíkt stoltir af að hafa prufað og líterinn af brennivíninu var ekki lengi að klárast.


Í gærkvöldi mættum við svo með Viking bjór á svæðið. Fólk varð fyrir þvílíkum vonbrigðum, búið að hlakka til að fá aftur hákarl. Svo við Mundi þurftum að útskýra fyrir fólkinu að því miður hefðum við bara ekki átt neinn hákarl og það væri hægara segt en gert að ætla að redda sér honum í Frakklandi. En þegar þau komust svo að því að við ættum von á heimsókn frá Íslandi þá var strax ákveðið að við myndum láta færa okkur eina krukku af hákarli og það yrði haldin önnur svona skemmtun fyrir jólafrí. Við erum sem sagt búin að gera Frakka alveg húkkt á hákarli og búin að lofa þeim smakki fyrir jól!


Annars var þetta bara hin fínasta skemmtun og mér til mikillar gleði var haldin limbókeppni sem ég rúllaði að sjálfsögðu upp!


tn_DSC08773.JPG

- Svanhildur | 15:25
Umræður

Hildur:

úhú sé að þú hefur engu gleymt, alveg með limbótaktana á hreinu enn þá!

(19.10.05 18:24)

Hildur:

nonoh, sé þú hefur engu gleymt- alveg með taktana á hreinu enn þá!

(19.10.05 18:25)

Hildur:

Ég skil ekki alveg, hann kommenterakallinn segist aldrei ná að taka við kommentinu mínu en svo eru alveg tvö komin frá mér.. en svo það sé alveg pottþétt á hreinu þá er ég semsagt með það alveg á hreinu að þú ert með limbótaktana alveg á hreinu enn þá...

(19.10.05 18:28)

svanhildur:

HAhahaha, takk fyrir þetta Hildur. Nú er ég alveg með það á hreinu að þú ert alveg með á hreinu að ég er alveg með limbótaktana á hreinu ennþá!

(20.10.05 11:51)

Fanney:

Svaka limbó gella maður!!!

Ég er ekki hissa á að Frakkar séu vitlausir í hákarl, þetta er náttla veislumatur og því meira lostæti :S ekki satt??

(21.10.05 11:03)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni